Þórarinn fer mikinn á feti

  • 7. september 2021
  • Fréttir

Djarfur frá Flatatungu og knapi hans Þórgunnur Þórarinsdóttir á Landssýningunni í Borgarnesi í sumar. Mynd: Gísli Guðjónsson

Tveir stóðhestar hlutu 9,5 fyrir fet á árinu

Tveir stóðhestar hlutu 9,5 fyrir fet á árinu hér á landi. Þetta eru þeir Djarfur frá Flatatungu og Greifi frá Bræðraá en þeir voru báðir sýndir af Þórarni Eymundssyni á Vorsýningunni á Hólum.

Djarfur er 8 vetra undan Spuna frá Vesturkoti og Dimmu frá Flatatungu, sem er undan Þey frá Prestsbæ og Línu frá Flatatungu. Ræktandi Djarfs er Árni Gunnarsson en eigandi er Helena Erla Árnadóttir.

Greifi er 5 vetra undan Korg frá Ingólfshvoli og Tign frá Úlfsstöðum sem er undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Vöku frá Mýnesi. Ræktandi og eigandi Greifa er Pétur Vopni Sigurðsson

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir fet.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Djarfur Flatatungu Þórarinn Eymundsson
Greifi Bræðraá Þórarinn Eymundsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link