Víkingur Gunnarsson verður fyrirlesari á menntaráðstefnu LH
Menntaráðstefna LH sem hefst 5.október kynnir næsta fyrirlesara sinn en það er Víkingur Gunnarsson. Stefnt er að því að halda hana 5 kvöld í október og byrjun nóvember á þessu ári og verður einn fyrirlesari í senn fyrstu 4 kvöldin, fimmta kvöldið verður svo samantekt og pallborðsumræður. Fyrsta dagsetning er 5.október og svo væntanlega vikulega út þann mánuð.
Víkingur Gunnarsson er lektor við Háskólann á Hólum og kennir meðal annars hreyfingafræði hrossa. Hann er hestamönnum vel kunnugur, var um árabil deildarstjóri hestafræðideildar skólans og er einnig einn reynslumesti kynbótadómari landsins. Hross úr ræktun þeirra hjóna sem kennd er við Kagaðarhól, hafa að auki vakið verðskuldaða athygli síðustu ár.
Víkingur vinnur m.a. að rannsóknum á hreyfingafræði hesta með áherslu á þróun aðferða við hlutlægt mat á gæðum gangtegunda og hreyfinga Íslenska hestsins í samstarfi við Sænska landbúnaðarháskólann í Uppsala, Háskólann í Utrecht og fleiri aðila. Tæknin sem notuð er byggir á þráðlausum hröðunarmælum sem settir eru á hestinn (Equimoves).
Á ráðstefnunni mun Víkingur fjalla sérstaklega um sérstöðu íslenska hestsins hvað mat á líkamsbeitingu og gæðum gangtegunda hans snertir.
Í lok þessarar viku verður birt verð og skráningaupplýsingar á ensku.
Skrá sig hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH