Stefnir í metár í útflutningi

  • 11. september 2021
  • Fréttir
Mikil eftirspurn eftir íslenska hestinum.

Það stefnir í annað metár í útflutningi ef horft er í heildarfjölda útfluttra hrossa á árinu. Nú þegar hafa verið flutt út 2.055 hross og er eingöngu september. Árið í fyrra var metár en þá voru flutt út rúmlega 2.300 hross sem var 54% fjölgun frá árinu áður. Til gamans má geta að frá árinu 2011 hafa að meðaltali 1.446 hross verið flutt út þetta er því mikil aukning síðustu tvo ár.

Flest hrossin hafa verið að fara til Þýskalands eða 854 talsins. Þar á eftir koma Danmörk (337 hross), Svíþjóð (292 hross) og Sviss (101 hross). Þá er einnig áhugavert að sjá að fjögur hross hafa verið flutt út til Rúmeníu og átta hross til Írlands en það eru ekki algeng útflutningslönd.

Hægt er að skoða sundurliðun eftir löndum sem flutt var út til og samanburð á milli áranna 2019, 2020 og 2021 í töflunni hér fyrir neðan.

Land 2019 2020 2021
Austurríki 91 145 85
Belgía 14 43 21
Kanada 4 4 1
Sviss 95 135 101
Þýskaland 640 974 890
Danmörk 172 271 351
Finnland 39 62 68
Færeyjar 23 17 15
Frakkland 27 28 35
Bretland 16 31 15
Grænland 0 8 0
Ungverjaland 0 1 2
Írland 0 0 8
Ítalía 4 2 2
Litháen 0 1 0
Lúxemborg 4 12 6
Lettland 0 3 0
Holland 49 80 58
Noregur 50 56 27
Rúmenía 0 0 4
Svíþjóð 224 306 292
Bandaríkin 51 141 74
Samtals: 1.509 2.320 2.055

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link