Fjögur hross hlutu 9,5 fyrir fegurð í reið

  • 12. september 2021
  • Fréttir

Haddadís frá Strandarhöfði og Ásmundur Ernir Snorrason í b úrslitum í fjórgangi á Íslandsmóti í sumar.

Alls hlutu fjögur hross 9,5 fyrir fegurð í reið í kynbótadómi á árinu hér á landi. Allt voru þetta hryssur en meðalaldur þeirra er 6,25 ár. Þrjár hlutu einkunnina á vorsýningu og ein á síðsumarssýningu. Allar hryssurnar eiga það líka sameiginlegt að hafa fengið 9,5 fyrir tölt. Allar eru þetta klárhryssur fyrir utan Þrá sem hlaut 6,0 fyrir skeið í þessum sama dómi.

Staka frá Hólum og Þrá frá Prestsbæ hlutu báðar þessa einkunn á vorsýningu á Hólum. Sýnandi Stöku er Mette Moe Mannseth en Staka er yngst af hryssunum, 5 vetra. Staka hlaut í aðaleinkunn án skeiðs 8,77, fyrir hæfileika án skeið 8,93 og fyrir sköpulag 8,49. Ræktandi og eigandi Stöku er Hólaskóli en Staka er undan Trymbil frá Stóra-Ási og Ösp frá Hólum sem er undan Markúsi frá Langholtsparti og Þokkabót frá Hólum. Staka hlaut einnig 9,5 fyrir tölt og hófa.

Þrá frá Prestsbæ var sýnd af Þórarni Eymundssyni. Þrá er 7 vetra og fyrir hæfileika hlaut hún 8,71, fyrir sköpulag 8,53 og í aðaleinkunn 8,65. Hún hlaut 10 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir tölt, greitt stökk og fegurð í reið. Ræktendur og eigendur Þráar eru þau Inga og Ingar Jensen. Þrá er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Þóru frá Prestsbæ sem er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og Þoku frá Hólum.

Ásmundur Ernir Snorrason sýndi Happadísi frá Strandarhöfði en hún er 6 vetra. Hún hlaut 9,26 í aðaleinkunn án skeiðs, 8,40 fyrir sköpulag og 8,96 í aðaleinkunn án skeiðs. Hún hlaut 9,5 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Eigandi og ræktandi Happadísar er Stella Sólveig Pálmarsdóttir. Happadís er undan Loka frá Selfossi og Gyðju frá Þorsteinsstöðum sem er undan Kveik frá Miðsitju og Ösp frá Djúpadal.

Rjúpa frá Þjórsárbakka var sýnd af Teiti Árnasyni. Rjúpa er 7 vetra en hún hlaut 9,08 fyrir hæfileika án skeiðs, 8,45 fyrir sköpulag og 8,86 í aðaleinkunn án skeiðs. Ásamt því að fá 9,5 fyrir fegurð í reið hlaut hún einkunnina fyrir tölt og samstarfsvilja. Ræktandi Rjúpu er Haraldur Þorgeirsson en eigandi Þjórsárbakki ehf. Rjúpa er undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Svölu frá Þjórsárbakka, sem var undan Dyn frá Hvammi og Eldingu frá Hóli.

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir fegurð í reið.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Haddadís Strandarhöfði Ásmundur Ernir Snorrason
Rjúpa Þjórsárbakka Teitur Árnason
Staka Hólum Mette Moe Camilla Mannseth
Þrá Prestsbæ Þórarinn Eymundsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link