Meistaradeild Ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju 2022
Meistaradeild Ungmenna mun hefja göngu sína 3 árið í röð á árinu 2022. Mikill áhugi er á deildinni og er undirbúningur í fullum gangi. Deildin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár en verið er að vinna í nokkrum smáatriðum til að gera deildina enbetri þetta árið.
Ungmennin geta farið að safna sér í lið og senda inn þátttöku. Hvert lið skipar 4 liðsmenn.
Skráningu á liðum skal senda á netfangið meistaradeildungmenna@gmail. com og lýkur skráningu 20.október. Skráningargjaldið er 150.000kr fyrir hvert lið.
Frekari upplýsingar um deildina munu birtast síðar.
Stjórn MDU

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH