Sýnikennsla með Benedikt Líndal
Miðvikudaginn 29. september klukkan 20 mun tamningameistarinn Benni Líndal vera með sýnikennslu um frumtamningu hesta í TM reiðhöllinni í Víðidal. Hann kemur með nokkur hross og leiðir áhorfendur í gegnum fróðlegt og skemmtilegt vinnuferli. Áhersla verður lögð á hestvænar aðferðir.
Sýnikennslan mun kosta 2000 kr. fyrir 18 ára og eldri. Frítt fyrir börn. Það verður posi á staðnum. Húsið opnar klukkan 19:30. Fræðslunefnd Fáks hlakkar til þess að sjá sem flesta hestamenn á áhugaverðri sýnikennslu.