Af hestafjölda
Þáttur íslenska hestsins í þjóðarbúskap er annar en áður var og fjöldi hrossa hefur breyst samkvæmt því.
Um aldamótin 1800 var talið að 60 hross væru á hverja 100 íbúa og rúmum 50 árum síðar voru þeir um 62 á hverja hundrað. Við vélvæðingu landsins fór hestum svo fækkandi. Um aldamótin 1900 voru þeir 55 talsins á hverja 100 íbúa og 46 árið 1930. Árið 1942 voru 50 hestar á hverja 100 landsbúa en árið 1949 er fjöldi þeirra dottin niður í 31. Þá voru hrossin 43.814 að tölu.
Í dag er ekki hægt að nálgast slíkar nákvæmnistölur en í nokkur ár hefur verið talið að fjöldi hrossa hérlendis sé um 80 þúsund. Það gera rúma 25 hesta á hverja 100 íbúa. Aðeins tæp 40% þeirra mun þó vera í reglulegri brúkun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH