Árið sem leið
Vetur
Útgáfa Eiðfaxa og Hestablaðisins var sameinuð í eina sæng. 6 dagablöð og 6 tímarit koma út á ári ásamt aukablöðum.
Leiðbeiningarþjónusta búnaðarsambandanna og ráðgjafasvið Bændasamtaka Íslands voru einnig sameinuð í eitt fyrirtæki, Ráðgjafamiðstöð landbúnðarins ehf.
Guðmundur Björgvinsson sigrar Meistaradeild suðursins eftir gífurlega spennu í stigakeppninni og Ísólfur Líndal Þórisson sigrar Meistaradeild norðursins með Bjarna Jónasson fast á hæla sér.
Glæsilegar reiðhallarsýningar voru haldnar um land allt.
Vor
Hestadagar í Reykjavík voru haldnir í þriðja sinn. Um 150 hestar fetuðu niður Skólavörðustíg í glæsilegri skrúðreið. Borgarstjórinn Jón Gnarr keyrði um miðbæinn í hestakerru.
Stóðhestadagur Eiðfaxa haldin í annað skipti. Margir lögðu leið sína á Brávelli þar sem sýndir voru fagrir fákar.
Umdeilt atvik varð á kynbótasýningu á Selfossi þegar Magnús Lárusson lét nokkur orð falla í hátalarkerfi mótsins sem féllu í misjafnan jarðveg. Hann baðst afsökunar á framferði sínu.
Sumar
Tvö fjórðungsmót fóru fram, á Vesturandi og Austurlandi. Dræm mæting var fyrir austan og framúrskarandi kynbótahross komu fram fyrir vestan.
Um 13.000 manns sóttu Heimsmeistaramótið í Berlín. Misjafnar raddir voru um gæði mótsins en stjarna þess var án efa Jóhann Skúlason sem átti ógleymanlega sýningu á hestinum Hnokka frá Fellskoti. Konráð Valur Sveinsson hlaut tvö skeiðgull í ungmennaflokki.
Íslandsmótið var vel hepppnað þar sem Jakob Svavar Sigurðsson sýndi glæsileg tilþrif á hestunum Al frá Lundum II og Eld frá Köldukinn.
Haust
Áverkarskýrslur sýndu að lítið miðar í því að draga úr áverkum. Tveir knapar af þeim sem sýndu fleiri en 10 hross eru áverkalausir á árinu, Leó Geir Arnarsson og Olil Amble .
Nóta frá Ási hlýtur Glettubikarinn hún á 10 afkvæmi en fyrstu fimm þeirra hafa komið til dóms með glæsilegum árangri.
Jóhann Skúlason kjörinn knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna. Efri-Rauðalækur hlaut verðlaun fyrir ræktun keppnishesta.
Auðsholtshjáleiga hlýtur titilinn ræktunarbú ársins í 2013 sinn á ráðstefnunni Hrossarækt.
Umdeildar tamningaraðferðir Iben Andersen ollu mikilli umræðu í heimi hestamnna.
Jarl frá Árbæjarhjáleigu og Narri frá Vestri-Leirárgörðum voru hæst dæmdu stóðhestar ársins báðir með 8.71 í aðaleinkunn.
Samkvæmt skráningum í worldfeng hafa alls 11.139 hross skipt um eigendur á árinu og 5.545 á Íslandi.
67 fyrstu verðlauna hross voru flutt út en útflutningur hrossa í ár er svipaður og síðustu tvö árin eða um 1100 hross.
Jarl frá Árbæjarhjáleigu
Jóhann Skúlason og Hnokki á heimsmeistaramótinu í Berlín
Auðsholtshjáleiga var valið Ræktunarbú ársins
Fjórðungsmót
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH