Fyrirlestur með Heiðrúnu Halldórsdóttur pílateskennara
Fimmtudaginn 28. október verður kynning á vetrarstarfi Fáks og hefst hún kl 20:00.
Eftir kynninguna á vetrarstarfinu, kl 21:00 mun Heiðrún Halldórsdóttir halda fyrirlestur um Pilates for Dressage sem er þjálfunarkerfi fyrir knapa. Heiðrún er Pilates for Dressage kennari og Romanas pilates kennari. Fyrirlestur hennar fjallar um ásetu og stjórnun, hvernig það á að nota líkamann á baki til þess að gefa skýrar ábendingar og bæta ásetu. Heiðrún hefur stundað pilates frá árinu 2007 og leggur mikla áherslu á eigin endurmenntun og sækir viðbótarnám a.m.k. einu sinni á ári erlendis.
Frítt verður inn á viðburðinn og léttar veitingar í boði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH