Samkvæmt tilkynningu á vef FT telur stjórn félagsins sig ekki bundna af afgreiðslu aðalfundar félagsins sl. föstudag. Mat stjórnar er það nú nokkrum dögum síðar að ólöglega hafi verið að málum staðið á fundinum. Fundurinn kaus Gunnar Arnarsson til að verða tilnefndan í Fagráð í hrossarækt fyrir hönd félagsins og Sigurbjörn Bárðarson til að verða tilnefndan fyrir hönd félagsins í Háskólaráð. Samkvæmt neðanrituðu virðist stjórn FT ekki ætla að una þessari niðurstöðu.
Sigrún Ólafsdóttir formaður félagsins hefur setið í Fagráði og ætlar greinilega ekki að láta sæti sitt eftir þrátt fyrir að hafa beðið lægri hlut fyrir Gunnari Arnarsyni í kosningu. Varðandi Sigurbjörn í Háskólaráð eru málin óljósari þar sem Ólafur H. Einarsson sem situr þar fyrir FT bar upp tillögu þess efnis að Sigurbjörn færi þangað í sinn stað, samkvæmt tilkynningunni hér að neðan virðist stjórn einnig ætla að hafna því.
Tilkynning stjórnar FT:
Frá FT varðandi skipun í ráð og nefndir
Á aðalfundi Félags tamningamanna sem haldinn var þann 30. nóvember síðastliðinn kom fram tillaga frá félaga um breytta tilhögun á skipan á fulltrúum félagsins í ráð og nefndir. Tillagan var borin upp undir lið 7 í grein 6.1. í lögum félagsins, en þegar tillagan var lögð fram höfðu margir félagsmenn farið af fundi. Kosið var um tillöguna, sem var samþykkt, og í framhaldi kosið um tilnefningu fundarins á fulltrúum félagsins í fagráð og háskólaráð.
Framangreind tillaga um breytta tilhögun á skipan fulltrúa í ráð og nefndir hafði ekki verið tilkynnt stjórn Félags tamningamanna í samræmi við grein 4.3 í lögum félagsins en samkvæmt þeirri grein skulu málefni sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi, tilkynnt stjórn félagsins minnst tveimur vikum fyrir aðalfund. Stjórn félagsins skal síðan tilkynna félagsmönnum dagskrá aðalfundarins ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa í síðasta lagi 10 dögum fyrir aðalfund á heimasíðu félagsins.
Tillaga um breytta tilhögun á skipan fulltrúa í ráð og nefndi hlýtur að teljast vera tillaga til breytinga á lögum félagsins. Samkvæmt grein 10.1. í lögum félagsins skipar stjórn félagsins, á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, fulltrúa í aganefnd og menntanefnd. Samkvæmt grein 10.2. skipar stjórn félagsins kjörnefnd eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir aðalfund hverju sinni. Samkvæmt grein 10.3. skipar stjórn félagsins fulltrúa félagsins í stjórnir og nefndir utan félagsins eftir því sem við á.
Samkvæmt grein 5.4. í lögum félagsins ræður einfaldur meirihluti kosningabærra félaga á aðalfundi úrslitum nema um lagabreytingu sé að ræða; þá þarf 2/3 hluta atkvæða viðstaddra atkvæðisbærra félagsmanna. Fundurinn getur með 2/3 hluta atkvæða leyft að taka fyrir mál önnur en lagabreytingar sem komið hafa fram eftir að dagsskrá var send félagsmönnum.
Það er mat stjórnar Félags tamningamanna að framangreind tillaga um breytta tilhögun á skipan í ráð og nefndir hafi ekki verið borin fram með lögmætum hætti. Tillagan verður að teljast fela í sér lagabreytingu og var því ekki heimilt að bera hana upp til atkvæða eins og gert var. Á fundinum var ekki leitað eftir samþykki fundarmanna fyrir því að taka upp önnur mál en þau sem tilkynnt höfðu verið stjórn og auglýst í samræmi við grein 4.3. Jafnvel þó svo verði talið að tillagan hafi ekki falið í sér lagabreytingu þá verður að telja afgreiðslu hennar engu að síður ólögmæta þar sem tilskilið er samkvæmt grein 5.4. að samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna hafi þurft til að taka mætti tillöguna á dagskrá.
Með hliðsjón af framangreindu og samkvæmt lögum félagsins telur stjórn Félags tamningamanna eðlilegt og rétt að tilnefna fulltrúa félagsins í fagráð og háskólaráð eins og verið hefur. Sú tillaga sem samþykkt var á aðalfundinum um breytta skipan á tilnefningu fulltrúa í ráð og nefndir getur ekki talist lögmæt.“
Það sem skiptir máli er að hvorki stjórnin né aðrir félagsmenn eru yfir lög félagsins hafin.
Stjórn FT.