Bikar frá Syðri-Reykjum seldur

  • 10. júní 2013
  • Fréttir
Bikar frá Syðri-Reykjum seldur

Þeir seljast grimmt klárhestarnir en Bikar frá Syðri-Reykjum er á leið út til Noregs. Bikar sló eftirminnilega í gegn í vetur og sýndi að hann er klárhestur í fremstu röð. Bikar er með fyrstu verðlaun (8,18) en hann er ræktaður af Helgu Unu Björnsdóttur en hún var jafnframt eigandi hans ásamt Takthestum ehf.

Nýju eigendur Bikars eru Stall Myra en þau keyptu einnig Framherja frá Flagbjarnarholti fyrr á árinu. Fyrir eiga þau heimsmeistaran Hvin frá Holtsmúla svo ekki vantar gæðingana á þeim bæ. 

Helga Una sýndi Bika í Víðidalnum nú í vor þar sem hann fór í sinn hæsta dóm 8,18. En hann hlaut meðal annars 9,0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og vilja og geðslag. Hér fyrir neðan er hægt að sjá dóminn í heild sinni.

 

Sköpulag

Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 8.5
Bak og lend 8
Samræmi 8
Fótagerð 8
Réttleiki 7.5
Hófar 8
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.11
Kostir

Tölt 9
Brokk 9
Skeið 5
Stökk 8
Vilji og geðslag 9
Fegurð í reið 9
Fet 8.5
Hæfileikar 8.23
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8.5
Aðaleinkunn 8.18

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link