Frumtamning og Þjálfun orðin aðgengileg öllum & að kostnaðarlausu

  • 17. nóvember 2021
  • Fréttir
Tímalaus kennslumyndbönd frá Benedikt Líndal

Benedikt Líndal hefur nú sett bæði kennslumyndböndin Frumtaning og Þjálfun inn á streymisveituna YouTube og eru þau því aðgengileg öllum og að kostnaðarlausu. Hægt er að sjá þau bæði á íslensku og ensku en þetta kemur fram í tilkynningu sem Benedikt birt hjá sér á Facebook. „Loksins – loksins ! Það tilkynnist hérmeð að bæði kennslumyndböndin Frumtamning og Þjálfun eru nú komin á youtube á íslensku og ensku. Aðgengileg öllum, þeim að kostnaðarlausu. Tímalaus snilld.“

Hægt er að sjá myndböndin með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Í kennslumyndbandinu Frumtamning er farið skref fyrir skref í tamningaferli sem spannar um 3 mánuði og lögð áhersla á að sýna hlutina á faglegan og skýran hátt þannig að sem flestir hafi gagn og gaman af. Tamningaferillinn er byggður á áratuga reynslu og faglegri þekkingu Benedikts og annarra. Eðlisþarfir hestsins eru hafðar í huga og maðurinn kemur með sinn þátt inn í tamninguna út frá forsendum hestsins þannig að hesturinn verður sáttari. Tamningaferillinn er tiltölulega einfaldur og eitt leiðir til annars. Hesturinn skilur og samþykkir það sem hann er að læra og temst því hraðar og betur.  Með þessari leið má einnig komast hjá átökum og vandamálum, sem yfirleitt orsakast vegna misskilnings milli manns  og hests, traust myndast og varanlegur grunnur er lagður fyrir áframhaldandi þjálfun.

Í kennslumyndbandinu Þjálfun opnar Benedikt Líndal dyrnar á tamningastöð sinni og leyfir áhorfendum að fylgjast með þjálfun nokkurra hrossa í u.þ.b. eitt þjálfunartímabil. Hann heldur áfram þar sem frá var horfið í fyrra myndbandi sínu um frumtamningu og sýnir hér áhorfendum ýmsar áhrifaríkar leiðir sem hann notar í framhaldsþjálfun. Komið inn á mikilvægi fjölbreyttra vinnubragða, þjálfun gangtegunda, hvernig við getum skapað jákvæða stemmningu til að viðhalda vinnugleðinni og auka árangur, rétta notkun stangaméla o.m.fl. Með því að byggja upp gagnkvæmt traust og virðingu og með vinnubrögðum sem hesturinn skilur og samþykkir skapast grundvöllur til að laða fram það besta í hverjum einstökum hesti, hvort heldur um er að ræða fjölskyldu eða keppnishest. Markmiðið með þjálfuninni er að hesturinn verði vel taminn, þjáll og mjúkur, léttur í beisli, næmur, líkamlega sterkur og öruggur á mismunandi gangi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link