Afkvæmi Sjóðs með hæstu meðaleinkunn fyrir fet

  • 11. desember 2021
  • Fréttir

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir fet.

Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.

Sjóður frá Kirkjubæ er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem hæsta einkunn hlutu fyrir fet á árinu. Meðaleinkunn þeirra fyrir fet er 8,38. Hann á alls 20 afkvæmi sýnd á árinu og meðalaldur þeirra er 6,3 ár.

Næstur honum er Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum með 10 dæmd afkvæmi á árinu sem eru 5,6 vetra að meðaltali með meðaleinkunnina 8,15 fyrir fet. Hreyfill frá Vorsabæ er þriðji í röðinni með 11 dæmd afkvæmi á árinu sem eru að meðalaldri 5,5 vetra en meðaleinkunn þeirra er 8,09 fyrir fet.

 

Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir fet.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Fet
Sjóður frá Kirkjubæ 20 6,3 8,38
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10 5,6 8,15
Hreyfill frá Vorsabæ 11 5,5 8,09
Spuni frá Vesturkoti 37 6,8 8,04
Álfasteinn frá Selfossi 15 7,1 8,00
Draupnir frá Stuðlum 11 4,3 8,00
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 7,96
Krákur frá Blesastöðum 1A 10 8,4 7,90
Loki frá Selfossi 18 6,8 7,83
Hrannar frá Flugumýri II 30 5,6 7,82
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 7,81
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 7,80
Álfur frá Selfossi 27 7,2 7,72
Hnokki frá Fellskoti 23 5,5 7,70
Viti frá Kagaðarhóli 13 5,7 7,69
Eldur frá Torfunesi 11 6,3 7,64
Trymbill frá Stóra-Ási 16 5,9 7,63
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13 6,5 7,62
Stáli frá Kjarri 35 6,7 7,61
Skaginn frá Skipaskaga 10 4,9 7,60
Óskasteinn frá Íbishóli 16 6,6 7,56
Arion frá Eystra-Fróðholti 29 5,8 7,55
Kiljan frá Steinnesi 14 6,8 7,54
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 7,50
Ómur frá Kvistum 33 6,4 7,45
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 7,40
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 11 5,3 7,27
Konsert frá Hofi 51 5,1 7,17
Arður frá Brautarholti 10 6,6 7,15

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link