Liðakynning 2 – Áhugamannadeild Equsana 2022
Þá er komið að næstu þremur liðum sem við kynnum til leiks sem munu taka þátt í Equsana deildinni á komandi tímabili, sem hefst 3. febrúar nk.
Í þessari annarri kynningu kynnum við lið Stjörnublikks, Kidka og Trausta.
Lið Stjörnublikks: Lið Stjörnublikks hefur verið með í Áhugamanndeildinni frá stofnun hennar og hefur liðið brallað margt skemmtilegt saman í gegn um árin. Við leggjum mikla áherslu á liðsheildina, þjálfum stíft en gleymum ekki að hafa gaman líka Við hlökkum til komandi vetrar og nýrra áskorana á keppnisvellinum og verður gaman að hitta öll liðin aftur.
Liðsmenn eru:
Þorvaður Friðbjörnsson
Aldur: 56 ára
Hestamannfélag: Fákur
Starfsgrein: Smiður
Elín Hrönn Sigurðardóttir
Aldur: 34 ára
Hestamannfélag: Geysir
Starfsgrein: Starfsmaður á leikskóla
Brynjar Nói Sighvatsson
Aldur: 23 ára
Hestamannafélag: Sindri
Starfsgrein: Vélamaður
Katrín Sigurðardóttir
Aldur: 48 ára
Hestamannafélag: Geysir
Starfsgrein: Ferðaþjónustu bóndi
Sanne Van Hezel
Aldur: 31 ára
Hestamannafélag: Sindri
Starfsgrein: Vinnur við hestatengda ferðaþjónustu
Þjálfarar: Davíð Jónsson, hestamannafélaginu Geysi; Logi Laxdal, hestamannafélaginu Fáki
Lið Kidka: Lið KIDKA er skipað hestamönnum úr Húnaþingi vestra sem öll eru félagar í Hestamannafélaginu Þyt. KIDKA er framleiðslufyrirtæki fyrir prjónavörur og framleiðir sína eigin vörulínu úr íslenskri ull. Vörumerkið stendur fyrir fallegar og þægilegar hágæða ullarvörur sem fylgja alltaf nýjustu tískustraumum. Framleiðslan fer eingöngu fram á Íslandi. Vörurnar frá KIDKA er að finna í verslunum um land allt. Verksmiðjan er staðsett á Hvammstanga. KIDKA framleiðir talsvert af vörum fyrir hesta og hestamenn. Ullarábreiður fyrir hesta með og án hálskraga, undirdýnur undir hnakka og hnakkahlífar. Að ógleymdum peysum, húfum og fleira sem nýtist íslenskum hestamönnum. Eigendur fyrirtækisins eru Irina Kamp og Kristinn Karlsson www.kidka.com.
Liðsmenn eru:
Kolbrún Grétarsdóttir
Aldur: 52 ára
Hestamannfélag: Þytur/Snæfellingur
Starfsgrein: Ferðaþjónustubóndi
Jóhann Albertsson
Aldur: 63 ára
Hestamannfélag: Þytur
Starfsgrein: Grunnskólakennari
Halldór P. Sigurðsson
Aldur: 67 ára
Hestamannfélag: Þytur
Starfsgrein: Húsasmíðameistari
Pálmi Geir Ríkharðsson
Aldur: 56 ára
Hestamannfélag: Þytur
Starfsgrein: Grunnskólakennari/bóndi
Sverrir Sigurðsson
Aldur: 61 ára
Hestamannafélag: Þytur
Starfsgrein: Sjálfstætt starfandi
Þjálfari: Hörður Óli Sæmundarson, hestamannafélaginu Þyt

Lið Trausta: Liðsmenn Trausta eru Sörlafélagar sem stunda hestamennsku í Hafnarfirði og á Selfossi. Þau Bjarni, Bryndís og Þorgerður Gyða hafa keppt áður í deildinni en Darri og Inga Kristín taka þátt í fyrsta skipti. Styrktaraðilar liðsins eru auk Trausta fasteignarsölu, Ásland hrossarækt, Böddi ehf, Frosti ÞH, Harðbakki og Smiðjan listhús.
Liðsmenn eru:
Darri Gunnarsson
Aldur: 57 ára
Hestamannafélag: Sörli
Starfsgrein: Verkfræðingur
Bjarni Sigurðsson
Aldur: 52 ára
Hestamannafélag: Sörli
Starfsgrein: Framkvæmdarstjóri Smiðjunnar Listhúss
Bryndís Arnarsdóttir
Aldur: 25 ára
Hestamannafélag: Sörli/Sleipnir
Starfsgrein: Vaktstjóri í Krónunni
Inga Kristín Sigurgeirsdóttir
Aldur: 34 ára
Hestamannafélag: Sörli
Starfsgrein: Tannlæknir
Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir
Aldur: 33 ára
Hestamannafélag: Sörli
Starfsgrein: Hárgreiðslukona
Þjálfari: Hinrik Sigurðsson, hestamannafélaginu Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH