Áhugamannadeild næsta fimmtudag

  • 28. janúar 2022
  • Fréttir
Deildin hefst á keppni í fjórgangi

Þá er komið að því! Ein áhugaverðasta keppnisröðin í hestaíþróttum á Íslandi hefst með keppni í fjórgangi fimmtudaginn 3. febrúar nk. kl. 19:00.

Ráslistar verða kynntir nánar þegar nær dregur mótið og allar skráningar hafa borist.

Góðar fréttir bárust í dag um að tilslakanir verða á sóttvörnum og er nú heimilt að hafa allt að 500 manns í rými. Hvetjum við því alla til að mæta á staðinn og horfa á þessa æsispennandi keppni.

 Við biðjum þá sem mæta að huga vel að eftirfarandi skilyrðum:

–       Allir gestir skulu vera sitjandi

– Milli ótengdra gesta þarf að viðhafa 1 metra í nálægðartakmökunum

–       Allir gestir skulu nota andlitsgrímu

–       Engin veitingarsala verður

–       Meðan á hlé stendur eru allir gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum.

–       Keppendur eru í sér sóttvarnarhólfi og ganga inn um sér inngang.

Áhugamannadeild Equsana hefur gert samkomulag við Alendis TV sem mun sýna beint frá keppninni í allan vetur. Hægt er að kaupa áskrift á heimasíðu Alendis: https://alendis.is/.

Dagskrá deildarinnar er:

  • Fimmtudagur 3. febrúar: Fjórgangur
  • Fimmtudagur 17. febrúar: Fimmgangur
  • Fimmtudagur 3. mars: Slaktaumatölt
  • Laugardagur 12. mars: Gæðingaskeið
  • Fimmtudagur 17 mars: Tölt – lokamótið

Í ár munu 15 lið keppa í deildinni og hafa orðið töluverðar breytingar á liðskipan í flestum liðum en liðin hafa nú þegar verið kynnt á vefmiðlum og samfélagsmiðlum. Liðin sem keppa í ár eru lið:

–       Voot

–       Ganghesta

–       Kingsland

–       Trausta

–       Heimahaga

–       Límtré Vírnet

–       Hvolpasveitarinnar

–       Kidka

–       Smiðjunnar Brugghús

–       Vagna og þjónustu

–       Tölthesta

–       Fleyg/Hrísdalshesta

–       Pure North

–       Stjörnublikks

–       Hrafnsholts

Spennan er mikil og æfingar löngu hafnar.

Minnum á facebook síðuna – Áhugamannadeild Equsana – og instagrammið.

Stjórn Áhugamannadeildarinnar hlakkar til að sjá ykkur sem flest, í Samskipahöllinni og á Alendis 3. febrúar nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link