Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Benedikt tryggði sér gullið

  • 4. febrúar 2022
  • Fréttir
Niðurstöður úr fjórgangnum í Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju

Fyrsta keppni í Meistaradeild ungmenna og dýralækna í Sandhólaferju fór fram í kvöld á Ingólfshvoli í Ölfusi. Margar flottar sýningar hjá ungmennunum en keppt var í fjórgangi V1.

Eftir forkeppni var Katla Sif Snorradóttir efst á Bálki frá Dýrfinnustöðum með 6,70 í einkunn. Signý Sól Snorradóttir var önnur á Kolbeini frá Horni I með 6,63 í einkunn og þriðji var Benedikt Ólafsson á Biskupi frá Ólafshaga með 6,57 í einkunn. Fimm knapar unnu sér þátttökurétt í B-úrslitum en sigurvegari þeirra tekur þó ekki þátt í A-úrslitum. Er þetta gert til þess að gefa fleirum færi á að ríða úrslit en ein úrslit eru talin nóg fyrir hesta á þessum árstíma.

B úrslitin voru spennandi og urðu þau jöfn Glódís Rún með Breka frá Austurási og Kristófer Darri Sigurðsson með Ófeig frá Þingnesi með einkunina 6,63

A úrslitin voru nokkuð jöfn en eftir hæga töltið tók Védís Huld forustu á Stássu frá Íbishóli en eftir fetið tóku þau Signý Sól á Kolbeini forustuna og héldu henni þangað til kom að greiða töltinu. Þá áttu þeir Benedikt og Biskup góða sýningu og uppskáru 8,0 í einkunn og tryggðu sér efsta sætið. Signý og Kolbeinn enduðu önnur og Védís og Stássa í þriðja sæti.

Lið Hrímnis endaði efst í liðakeppninni en þau Benedikt og Signý kepptu bæði fyrir lið Hrímnis.

Næsta mót er keppni í fimmgangi sem fer fram föstudagskvöldið 18.febrúar.

Heildar niðurstöður má sjá hér fyrir neðan

A úrslit – Fjórgangur – Meistaradeild Ungmenna

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga 7,00
2 Signý Sól Snorradóttir Kolbeinn frá Horni I 6,90
3 Védís Huld Sigurðardóttir Stássa frá Íbishóli 6,83
4 Katla Sif Snorradóttir Bálkur frá Dýrfinnustöðum 6,80
5 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Saga frá Dalsholti 6,33

B úrslit – Fjórgangur – Meistaradeild Ungmenna

Sæti Knapi Hross Einkunn
6-7 Kristófer Darri Sigurðsson Ófeigur frá Þingnesi 6,63
6-7 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 6,63
8 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi 6,60
9 Sigurður Baldur Ríkharðsson Ás frá Traðarlandi 6,57
10 Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk 6,47

Forkeppni – Fjórgangur – Meistaradeild Ungmenna

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Katla Sif Snorradóttir Bálkur frá Dýrfinnustöðum 6,70
2 Signý Sól Snorradóttir Kolbeinn frá Horni I 6,63
3 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga 6,57
4 Védís Huld Sigurðardóttir Stássa frá Íbishóli 6,53
5 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Saga frá Dalsholti 6,33
6 Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk 6,30
7-8 Sigurður Baldur Ríkharðsson Ás frá Traðarlandi 6,27
7-8 Kristófer Darri Sigurðsson Ófeigur frá Þingnesi 6,27
9-10 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi 6,20
9-10 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 6,20
11-12 Hrund Ásbjörnsdóttir Rektor frá Melabergi 6,17
11-12 Stefanía Sigfúsdóttir Framtíð frá Flugumýri II 6,17
13-14 Embla Þórey Elvarsdóttir Kolvin frá Langholtsparti 6,10
13-14 Herjólfur Hrafn Stefánsson Þinur frá Reykjavöllum 6,10
15 Anna María Bjarnadóttir Sandur frá Miklholti 6,07
16 Unnsteinn Reynisson Styrkur frá Hurðarbaki 6,03
17 Þorvaldur Logi Einarsson Djarfur frá Ragnheiðarstöðum 5,90
18 Melkorka Gunnarsdóttir Hvellur frá Fjalli 2 5,87
19-20 Hjördís Helma Jörgensdóttir Hrafn frá Þúfu í Kjós 5,83
19-20 Kristján Árni Birgisson Glámur frá Hafnarfirði 5,83
21 Arndís Ólafsdóttir Klettur frá Ketilsstöðum 5,80
22 Aníta Rós Kristjánsdóttir Samba frá Reykjavík 5,67
23 Hanna Regína Einarsdóttir Nökkvi frá Pulu 5,60
24-26 Thea Amby Gregersen Sending frá Þjóðólfshaga 1 5,50
24-26 Sigurveig Sara Guðmundsdóttir Lóa frá Þúfu í Landeyjum 5,50
24-26 Viktoría Von Ragnarsdóttir Ramona frá Gunnbjarnarholti 5,50
27 Katrín Ósk Kristjánsdóttir Fannar frá Skammbeinsstöðum 1 5,43
28 Bergey Gunnarsdóttir Kristall frá Litlalandi Ásahreppi 5,23
29-31 Kristín Hrönn Pálsdóttir Gaumur frá Skarði 5,20
29-31 Kári Kristinsson Drift frá Hraunholti 5,20
29-31 Þórey Þula Helgadóttir Hlökk frá Hvammi I 5,20
32 Guðlaug Birta Sigmarsdóttir Hrefna frá Lækjarbrekku 2 5,13

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link