Liðakynning á liði Smiðjunnar Brugghús í Suðurlandsdeildinni
Suðurlandsdeildin er alveg að hefjast og hestamenn geta fjölmennt í Rangárhöllina sem er kærkomið nú eða fylgst með í beinni útsendingu á Alendis. Suðurlandsdeildin hefur göngu sína á ný, nú í sjötta sinn, þriðjudaginn 1. mars n.k.
Suðurlandsdeildin hefur nokkra sérstöðu þar sem keppnin er eingöngu liðakeppni og hvert lið er skipað þremur atvinnumönnum og þremur áhugamönnum. Keppni hefst að þessu sinni á Parafimi, sem má segja að sé einkennisgrein Suðurlandsdeildarinnar, þar sem atvinnumaður og áhugamaður mynda par og ríða fimi prógram sem þeir hafa sjálfir sett upp fyrir sig og sína hesta. Oft hefur mikil stemning skapast fyrir greininni, og má búast við 28 mjög fjölbreyttum og skemmtilegum sýningum. Hestamenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta í Rangárhöllina þann 1. mars, hitta mann og annan og fylgjast með stórglæsilegum sýningum Parafiminnar.
Annað liðið sem kynnt er til leiks er lið Smiðjunnar Brugghús
UM SMIÐJUNA BRUGGHÚS
Liðið dregur nafn sitt af Smiðjunni Brugghús sem er handverksbrugghús og veitingastaður í Vík í Mýrdal. Smiðjan Brugghús leggur mikla áherslu og metnað í djúsí hamborgara, rif, vængi og fyrsta flokks handverksbjór.
Liðsstjóri liðsins er Hjördís Rut og keppir hún sem áhugamaður í deildinni:
Nafn: Hjördís Rut Jónsdóttir
Aldur: 44 ára
Starfstitill: kennari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Mun leggja mig fram við að vera tilbúin í úrtöku fyrir hverja grein.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Ég steig mín fyrstu skref í íþróttakeppni á Áhugamannamóti Íslands 2015, á gæðingnum Háreki frá Hafsteinsstöðum sem að ég hafði nýlega keypt. Ég naut stundarinnar sannarlega á þessu móti og landaði sigrí í V5 og var valinn úr hópi knapa mótsins og sæmd reiðmennskuverðlaunum Félags tamningarmanna.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Við í liðinu erum við dugleg að hittast á hverju keppnistímabili og æfum stíft með snillingnum Sylvíu sem hefur klárlega gert mig að betri reiðmanni. Samverustundirnar með liðsfélögunum eru alltaf tilhlökkunarefni, frábær hópur sem að afar gaman er að vera í kring um.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Það kemur bara í ljós hvort að ég læt sjá mig á vellinum en í brekkunni verð ég klárega með Smiðjubjór í hönd.
Aðrir áhugamenn liðsins eru:
Nafn: Vilborg Smáradóttir
Aldur: 41 árs
Starfstitill: Fjárfestir og bókari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Allar
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Að mæta blaut bak við eyrun á Íþróttamót Harðar 2014 á 6 vetra hryssunni minni, þekkjandi ekki nema brot af reglum um íþróttakeppni og uppskera efstu sætin í 2. flokki í báðum greinum sem ég tók þátt í. Ég var svo hissa og sæl eftir fyrri greinina að ég gleymdi næstum því að mæta í þá seinni en rétt náði inn í braut á 3 kalli og afgreiddi T7 með stæl.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Félagslegi hlutinn er stóra málið enda eru liðsfélagarnir einstaklega skemmtilegir, en að auki fer mér verulega fram sem knapa ár frá ári undir hárnákvæmri tilsögn snillingsins Sylvíu.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar?
Að öllum líkindum meira í brekkunni enda ætla ég svo aldeilis að njóta þegar verður loksins hægt að halda Landsmót
Nafn: Guðbrandur Magnússon
Aldur: Fæddur 1962
Starfstitill: Bóndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Stefni á úrtöku í öllum greinum
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar eiginkonan varð heimsmeistari
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Þróar mig sem betri reiðmann og skemmtilegur félagsskapur
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Verð í brekkunni
Atvinnumenn liðsins eru:
Nafn: Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir
Aldur: 29 ára
Starfstitill: Tamningamaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Öllum.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hugsa að það hafi verið þegar ég sigraði A-flokk á Fjórðungsmóti Austurlands 2015. Það sem toppaði það var að pabbi gerði sér sérferð upp á Hérað til að horfa á mig í úrslitum, lét mig náttúrulega ekki vita þar sem að hann hélt að hann væri ólukkugrippur fyrir mig. Hann hafði nokkrum sinnum horft á mig keppa og þá hafði alltaf gengið illa. Þetta sneri því heldur betur við.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Skemmtilegir félagar, áskorun og frábær reiðkennsla í hverri viku fyrir mót hjá henni Sylvíu.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vellinum
Nafn: Hlynur Guðmundsson
Aldur: 33 ára
Starfstitill: Tamningamaður, hænsna, katta og sauðfjárbóndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Flestum
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar ég reið yfirlitssýningu á Öskju frá Efstu-Grund á Landsmóti og hún hækkaði á fimm stöðum og endaði á því að standa efst 4. vetra hryssna.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Frábær félagsskapur og heldur manni við efnið.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Á vellinum.
Nafn: Kristín Lárusdóttir
Aldur: Á besta aldri
Starfstitill: Tamningarmaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Í þær greinar sem Sylvía velur mig í Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar ég gat farið að ríða yfir 8 í tölti 2015 sem endaði með 8,44 á Heimsmeistaramótinu í Herning
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Mjög mikið, liðsfélagrnir eru mjög skemmtilegir og manni hlakkar til að fara á allar æfingar svo er Sylvía að hjálpa mér að komast upp á næsta level
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Verð a.m.k. pottþétt í brekkunni hitt kemur bara í ljós.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH