Ráslisti fyrir parafimina í kvöld
Lið Húsasmiðjunnar sigraði Parafimina 2021
Keppt verður í Parafimi Víking brugghús og Coca-Cola í kvöld, þriðjudagskvöldið, 1. mars og hefst keppni kl. 18:00.
Nú fögnum við því að mega loksins koma saman án takmarkanna. Veitingasalan verður opin og verður rjúkandi súpa á boðstólnum, samlokur, nammi, gos og kaffi á boðstólnum.
Suðurlandsdeildin hefur nokkra sérstöðu þar sem keppnin er eingöngu liðakeppni og hvert lið er skipað þremur atvinnumönnum og þremur áhugamönnum. Keppni hefst að þessu sinni á Parafimi, sem má segja að sé einkennisgrein Suðurlandsdeildarinnar, þar sem atvinnumaður og áhugamaður mynda par og ríða fimi prógram sem þeir hafa sjálfir sett upp fyrir sig og sína hesta. Oft hefur mikil stemning skapast fyrir greininni, og má búast við 28 mjög fjölbreyttum og skemmtilegum sýningum. Hestamenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta í Rangárhöllina þann 1. mars, hitta mann og annan og fylgjast með stórglæsilegum sýningum Parafiminnar. Suðurlandsdeildin verður sýnd í beinni útsendingu á ALENDIS í vetur og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem ekki komast á staðinn til þess að fylgjast vel með þar.
Spennan magnast meðal Sunnlenskra hestamanna og ljóst er að útlit er fyrir gríðarlega sterka keppni í vetur!
Fyrsta kvöld af fjórum framundan, aðgangseyrir aðeins 1.500 kr.
Nánari upplýsingar um Suðurlandsdeildina má nálgast HÉR
RÁSLISTI:
Holl Lið Knapi/hestur Knapi/hestur
1 Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð Sanne Van Hezel / Völundur frá Skálakoti Selina Bauer / Fálki frá Kjarri
2 Töltrider Elín Árnadóttir / Prýði frá Vík í Mýrdal Brynjar Nói Sighvatsson / Iða frá Vík í Mýrdal
3 Vesturkot Matthías Kjartansson / Aron frá Þóreyjarnúpi Arnar Heimir Lárusson / Flosi frá Búlandi
4 Byko Brynja Amble Gísladóttir / Silfra frá Syðri-Gegnishólum Árni Sigfús Birgisson / Fjöður frá Hrísakoti
5 Efsta-Sel Valdís Björk Guðmundsdóttir / Lind frá Svignaskarði Kristín Hermannsdóttir / Þokkadís frá Rútsstaða-Norðurkoti
6 Fet Bylgja Gauksdóttir / Goði frá Garðabæ Pálína Margrét Jónsdóttir / Árdís frá Garðabæ
7 Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær Fríða Hansen / Sylgja frá Leirubakka Elín Hrönn Sigurðardóttir / Nói frá Hrafnsstöðum
8 Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún Arnhildur Helgadóttir / Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti Hafþór Hreiðar Birgisson / Tónn frá Hjarðartúni
9 Nonnenmacker Helga Una Björnsdóttir / Bylgja frá Barkarstöðum Birna Olivia Ödqvist / Hvítasunna frá Flagbjarnarholti
10 Smiðjan Brugghús Kristín Lárusdóttir / Strípa frá Laugardælum Guðbrandur Magnússon / Straumur frá Valþjófsstað 2
11 Húsasmiðjan Ólafur Þórisson / Askur frá Miðkoti Sarah Maagaard Nielsen / Djörfung frá Miðkoti
12 Klúbbhúsið/MúrX Jóhanna Guðmundsdóttir / Frægð frá Strandarhöfði Elísa Benedikta Andrésdóttir / Moli frá Ferjukoti
13 Slippfélagið Vilfríður Sæþórsdóttir / Viljar frá Múla Sigurður Halldórsson / Gustur frá Efri-Þverá
14 Krappi Lea Schell / Silfá frá Húsatóftum 2a Sara Pesenacker / Sefjun frá Skíðbakka III
15 Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð Vignir Siggeirsson / Jörfi frá Hemlu II Anne Tabea E. Krishnabhakdi / Askur frá Holtsmúla 1
16 Töltrider Árný Oddbjörg Oddsdóttir / Adam frá Reykjavík Theodóra Jóna Guðnadóttir / Assa frá Þúfu í Landeyjum
17 Vesturkot Karen Konráðsdóttir / Lind frá Hárlaugsstöðum 2 Sandra Steinþórsdóttir / Gjöf frá Oddgeirshólum
18 Byko Elin Holst / Spurning frá Syðri-Gegnishólum Sævar Örn Sigurvinsson / Huld frá Arabæ
19 Efsta-Sel Jón Óskar Jóhannesson / Örvar frá Gljúfri Halldóra Anna Ómarsdóttir / Öfgi frá Káratanga
20 Fet Hjörtur Magnússon / Viðar frá Skeiðvöllum Renate Hannemann / Hugrún frá Herríðarhóli
21 Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær Jóhann Kristinn Ragnarsson / Kvarði frá Pulu Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg / Gosi frá Reykjavík
22 Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún Hekla Katharína Kristinsdóttir / Lilja frá Kvistum Gísli Guðjónsson / Sikill frá Árbæjarhjáleigu II
23 Nonnenmacker Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Safír frá Kvistum Katrín Eva Grétarsdóttir / Sif frá Þorlákshöfn
24 Smiðjan Brugghús Bjarney Jóna Unnsteinsd. / Dökkvi frá Miðskeri Vilborg Smáradóttir / Sigur frá Stóra-Vatnsskarði
25 Húsasmiðjan Davíð Jónsson / Tromma frá Skeiðvöllum Katrín Sigurðardóttir / Haukur frá Skeiðvöllum
26 Klúbbhúsið/MúrX Hákon Dan Ólafsson / Hátíð frá Hólaborg Þuríður Ósk Ingimarsdóttir / Styrkur frá Kvíarhóli
27 Slippfélagið Þórdís Erla Gunnarsdóttir / Fengur frá Auðsholtshjáleigu Saga Steinþórsdóttir / Mói frá Álfhólum
28 Krappi Sigurður Sigurðarson / Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 Hallgrímur Óskarsson / Ný Dönsk frá Lækjarbakka
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum