Nýmóts Þrígangur
Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 11. mars 2022, Nýmót styrkir mótið.
Skráning er hafin og stendur til miðnættis þriðjudaginn 8. mars. Skráning fer fram inn á sportfengur.com.
Boðið verður uppá keppni í fimm flokkum í fegurðartölti, brokki og stökki: V6
13 ára og yngri
14 – 17 ára
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur
Boðið verður uppá keppni í fjórum flokkum í fegurðartölti, brokki og skeiði: F2
17 ára og yngri
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur
Sýndir eru 3 sprettir en 2 bestu gilda
Í sportfeng er skráð í flokkana á eftirfarandi hátt:
13 ára og yngri – barnaflokkur
17 ára og yngri – fullorðinsflokkur 3.flokkur
Minna vanir – fullorðinsflokkur 2. flokkur
Meira vanir – fullorðinsflokkur 1. flokkur
Opinn flokkur – fullorðinsflokkur
Það komast 6 í úrslit í hverjum flokki.
Skráningargjöld í barnaflokk er 3000 kr og fyrir hina flokkana 3500 kr
Við auglýsum síðar þegar skráning liggur fyrir hvenær mótið byrjar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH