Norðlenska hestaveislan á laugardaginn
Norðlenska hestaveislan verður í Reiðhöll Léttis laugardaginn 23. apríl. Húsið opnar kl. 18:00 en sýningin, Fákar og Fjör, hefst kl. 20:00
Eftir sýningu kl 00:00 verður hestamannaball í Skeifunni en danshljómsveitin Arasynir leikur fyrir dansi.
Hægt verður að kaupa ljúffengan kvöldverð í Skeifunni fyrir sýningu á kr. 2.500 kr.
Glæsilegir stóðhestar, skrautreið, alhliðahross, flugskeið, klárhross, ræktunarbú, bjartasta vonin, grín, verðlauna afhending Hrossaræktarstarfs HEÞ og margt fleira skemmtilegt.
Miðasala á sýninguna verður við innganginn. Sýning og ball kr. 4.500. Ball kr. 2.500.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH