Skeifudagurinn á Hvanneyri

FV: Maria Damalee, Erla Björg Björnsdóttir, Linda Bjarnadóttir, Helgi Valdimar Sigurðsson, Gissur Gunnarsson, Sigríður Magnea Kjartansdóttir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Vilborg Hrund Jónsdóttir. Mynd: Vibeke Thoresen
Skeifudagurinn á Hvanneyri var haldinn með pompi og pragt eftir tveggja ára hlé á sumardaginn fyrsta. Sérstaklega ánægjulegt var að geta haldið uppá þann áfanga að nú hefur skólinn tryggt sér glæsilega aðstöðu að Mið-Fossum sem nýtt hefur verið undir reiðmennsku og hestatengda kennslu.
Dagurinn hófst á fánareið og setningarávarpi Ragnheiðar I. Þórarinsdóttir rektors. Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræðibrautar hélt síðan ávarp og kynnti brautina og möguleika hennar til framtíðar. Í kjölfarið voru tvö sýningaratriði frá nemendum hestafræðinnar. Nemendur búfræðibrautar sýndu tamningartryppi sín þar sem Randi Holaker og Guðbjartur Þór Stefánsson reiðkennarar vetrarins kynntu þau og fóru yfir starf vetrarins.
Allir nemendur í reiðmennskuáföngum kepptu síðan í fjórgangi og voru síðan riðin úrslit annars vegar hjá nemendum hestafræðibrautar og hinsvegar búfræðinemenda sem kepptu um Gunnarsbikarinn.
Að lokinn dagskrá í var boðið til kaffis í hestamiðstöðinni og þar ávarpaði Helgi Eyleifur Þorvaldsson brautarstjóri búfræði samkomuna og veitti viðurkenningar ásamt því að tilkynna verðlaunahafa dagsins. Deginum lauk svo með útdrætti í stóðhestahappdrætti Grana.
Úrslit dagsins:
Morgunblaðsskeifan
Morgunblaðsskeifuna 2022 hlaut Helgi Valdimar Sigurðsson en þetta er þriðja skeifan sem fer heim að Skollagróf þar sem bæði bróðir Helga og systir hlutu skeifuna 2019 og 2016. Helgi Bjarnason afhenti Skeifuna fyrir hönd Morgunblaðsins og er þetta í 65. skipti sem hún er veitt. Skeifuna hlýtur sá nemandi sem náð hefur bestum árangri á frumtangingaprófi og í reiðmennsku III.
Í öðru sæti var Gissur Gunnarsson og því þriðja Vilborg Jónsdóttir. Í fjórða sæti Erla Björg Björnsdóttir og því fimmta Salbjörg Ragna Sævarsdóttir.
Eiðfaxabikar hlaut Linda Bjarnadóttir en hann er veittur fyrir bestu einkunn í áfanganum reiðmennska II. Eiðfaxabikarinn hefur verið veittur síðan 1978.
Reiðmennsku- og ásetuverðlaun Félags tamningamanna hafa verið veitt síðan 1971 og hlaut Sigríður Magnea Kjartansdóttir þau og veitti Silvía Sigurbjörnsdóttir formaður FT þau verðlaun.
Framfaraverðlaun Reynis hlaut Gissur Gunnarsson en þau eru veitt til minningar um Reyni Aðalsteinsson tamningameistara þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga og ástundun og tekið sem mestum framförum í reiðmennsku.
Gunnarsbikarinn er síðan veittur þeim sem stendur hæðst í fjórgangskeppni búfræðinema og er veittur til minningar um Gunnar Bjarnason og hlaut hann Sigríður Magnea Kjartansdóttir. Í öðru sæti Linda Bjarnadóttir og því þriðja Helgi Valdimar Sigurðsson. Þá í því fjórða Erla Björg Björnsdóttir og fimmta Gissur Gunnarsson.

Linda Bjarnadóttir hlaut Eiðfaxabikarinn en hann er veittur fyrir bestu einkunn í áfanganum reiðmennska II. Eiðfaxabikarinn hefur verið veittur síðan 1978. Mynd: Vibeke Thoresen