Loksins Landsmót

  • 6. maí 2022
  • Fréttir
58 dagar í veisluna

Margir hestamenn bíða með eftirvæntingu eftir stærsta viðburði ársins í hestaheiminum – Landsmóti á Hellu. Landsmótið hefst 3. júlí og eru því 58 dagar til stefnu.

Skipuleggjendur eru í óðaönn að undirbúa hátíðarhöldin en fyrir utan frábæran hestakost á mótinu er lögð áhersla á sveitaballastemminguna líkt og var á mótum hér áður fyrr. Í tilkynningu frá skipuleggjendum í ár segir að stemmning fyrir mótinu í ár sé í hæstu hæðum. „Landsmótsdagskráin er í smíðum en það er ljóst að stemningin verður keyrð í botn því Páll Óskar stígur á svið á föstudagskvöldinu 8. júlí og Paparnir slá botninn í mótið með því sem verður epískt sveitaball laugardagskvöldið 9. júlí,“ segir í tilkynningu.

Miðasala er í fullum gangi á mótið og einnig er búið að opna fyrir sölu á stæðum með rafmagni fyrir ýmiskonar útileguhýsi. Sýning ræktunarbúa verður á sínum stað og hefur verið opnað fyrir umsóknir en sýningar ræktunarbúa hafa skipað heiðurssess á landsmótum hestamanna.

Kaupa miða á mótið KAUPA MIÐA

Kaupa tjaldsvæði með rafmagni KAUPA STÆÐI

Sækja um ræktunarbúsýningu á mótinu HÉR

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link