Tölt- og skeiðgreinar opnar á Gæðingamóti Fáks

  • 23. maí 2022
  • Fréttir

Teitur Árnason og Hafsteinn frá Vakurstöðum en þeir unnu a flokkinn á Landsmóti 2018

Gæðingamót Fáks og Landsmótsúrtaka 2022

Gæðingamót Fáks og Landsmótsúrtaka 2022 fer fram dagana 26.-29. maí. Gæðingaflokkar eru lokaðir fyrir félagsmenn en tölt- og skeiðgreinar eru opnar.

Boðið er upp á tvær umferðir og verður fyrirkomulagið eftirfarandi:
Fimmtudagur 26. maí – fyrri umferð, allir gæðingaflokkar.
Föstudagur 27. maí – skeið og tölt
Laugardagur 28. maí – seinni umferð, allir gæðingaflokkar (nema C-flokkur).
Sunnudagur 29. maí – Úrslit: Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.

Skráningar:
Mótið heitir: Gæðingamót Fáks & Landsmótsúrtaka
Seinni umferð úrtöku heitir: Fákur – seinni umferð Landsmótsúrtöku
Skráning í seinni umferð er valkvæð og verður skráning opin til kl. 12.00 föstudaginn 28. maí.
Ekki er hægt að skrá hesta eða knapa í seinni umferð hafi þeir ekki tekið þátt í þeirri fyrri.
Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr báðum umferðum.

Mótanefnd Fáks
[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link