Horses of Iceland – Dagur ræktenda á Landsmóti
Mynd: Christiane Slawik
Þann 10. júlí, sunnudaginn eftir Landsmót hestamanna á Hellu, eru ræktunarbú á svæðinu hvattir til að bjóða heim, hafa opin hús og rækta tengslin. Hinn almenni hestamaður fær tækifæri til að taka hús á hrossabændum og atvinnumönnum í hestageiranum og þarna býðst þessum aðilum að sýna sig og sjá aðra, ná góðu spjalli og skapa mikilvæg sambönd til framtíðar.
Horses of Iceland markaðsverkefnið mun vekja athygli á öllum sem munu taka þátt í þessum skemmtileg degi en samstarfsaðilar verkefnisins fá sérstakan sýnileika og kynningu á Landsmóti og á vef- og samfélagsmiðlum verkefnisins.
Hér má skrá sig beint. Skráningarfrest lýkur 10 júní.
Taktu þátt í Horses of Iceland
Horses of Iceland er markaðsverkefni sem vinnur að því að auka verðmætasköpun í kringum íslenska hestinn. Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins, en allir sem stunda ræktun, útflutning, eða aðra hestatengda þjónustu geta tekið þátt í verkefninu. Samstarfsaðilar koma að því að móta áherslur og markaðsaðgerðir og fá kynningu á sinni starfsemi á vef og samfélagsmiðlum Horses of Iceland og á viðburðum á vegum Horses of Iceland.
Stjórnvöld á Íslandi leggja verkefninu til 25 milljónir króna árlega í fjögur ár, gegn sama framlagi aðila í hestatengdri starfsemi. Verkefnið hefur nýlega verið framlengt til loka desember 2025. Horses of Iceland leitar nú að nýjum samstarfsaðilum fyrir tímabilið 2022 – 2025. Um stórt tækifæri er að ræða fyrir hestamenn til að sameina þekkingu og reynslu til að stíga fram af enn meiri slagkraft með samræmd skilaboð.
Nánari upplýsingar um kostnað og ávinning af þátttöku í verkefninu má finna hér. Samstarfssamning má finna hér.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jelena Ohm, Verkefnastjóri Horses of Iceland
[email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH