Óbærilegur léttleiki Laufskálaréttar
Heimildarmyndin Óbærilegur léttleiki Laufskálaréttar eftir Árna Gunnarsson var frumsýnd í byrjun mánaðarins í Sauðárkróksbíó.
Kvikmyndað var í Laufskálarétt fimm ár í röð, en auk þess var fylgst með upprekstri í Kolbeinsdal að sumri og Kolbeinsdalurinn myndaður að vetri til, auk þess sem farið var til Þýskalands og rætt við hestafólk sem hafði pantað sér ferð í Laufskálarétt. Viðtöl eru sýnd við fólkið fyrir og eftir Íslandsferðina og má segja að þátttakan í smöluninni úr Kolbeinsdal niður í Laufskálarétt hafi haft djúpstæð áhrif á hina erlendu gesti. Í myndinni er einnig sýnt úr 8 m.m. kvikmynd sem tekin var í Laufskálarétt 1970 og sýndar ljósmyndir frá vígslu réttarinnar 1954.
“Ég hef reyndar verið nokkuð ákveðinn í að sýna íslenska hestinn í íslenskri náttúru í mínum myndum, til þess að útskýra fyrir þeim sem ekki þekkja til að svo stór hluti af hinu frábæra eðli hestsins kemur frá þróun hans í okkar stórbrotnu og síbreytilegu náttúru,” segir Árni en myndin hefur fékk afar jákvæð viðbrögð frumsýningargesta.
Að sögn Árna var mikið vandað til upptöku myndarinnar en hún er tekin upp í fullum HD gæðum. Kvikmyndataka var að mestu leyti í höndum Bergsteins Björgúlfssonar, Friðþjófs Helgasonar og Steingríms Karlssonar.
Árni hefur verið iðinn við gerð kvikmynda um íslenska hestinn og hefur áður sent frá sér hestamyndirnar Í Austurdal og Kraftur – Síðasti spretturinn.
Óbærilegur léttleiki Laufskálaréttar fæst í hestavöruverslunum, á nammi.is og HÉR í vefverslun Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH