Konráð Axel íþróttamaður Faxa
Konráð Axel Gylfason var kjörin íþróttamaður hestamannafélagsins Faxa á aðalfundi þess þann 4. desember sl. Þetta er í annað sinn sem Konráð hlýtur þennan titil þrátt fyrir ungan aldur.
„Konráð er vel að þessum sigri kominn, gekk vel árið 2012, varð Reykjavíkurmeistari í gæðingaskeiði unglinga og annar í fimmgangi á sama móti ásamt því að verða Íslandsmeistari í slaktaumatölti og 3 í gæðingaskeiði á íslandsmóti barna og unglinga í sumar, ásamt fjölda annarra vinninga á minni mótum. Við óskum Konráð Axel innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!“ segir í tilkynningu frá Faxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH