Landsmót 2024 Mikil tilþrif í a flokknum

  • 6. júlí 2022
  • Fréttir
Niðurstöður og myndband frá milliriðlum í A flokki

Milliriðlum í A flokki er lokið og var brekkan þétt setin með keppnin fór fram. Sífellt bætist í fjölda gesta hér á Hellu en mótshaldarar gera ráð fyrir 8.000 – 10.000 manns. Forsala miða gekk vel og hefur sala á miðum bæði í dag og í gær verið meiri en vonast var til.

Mikil tilþrif sáust í A flokknum og voru nokkrir knapar sem veifuðu í endann á skeiðsprettnum sem vakti mikla lukku hjá áhorfendum. Sigurvegari a flokksins er enn óráðinn ef taka má svo til orða. Mjótt er á munum á milli hesta og erfitt að segja til um hver mun standa uppi sem sigurvegari á laugardaginn.

Goði frá Bjarnarhöfn er efstur eftir milliriðla með 8.80 í einkunn. Var hann að fá 9,0 og yfir fyrir skeið og vilja. Knapi á Goða er Daníl Jónsson. Annar eftir milliriðla er Þráinn frá Flagbjarnarholti með 8,76 í einkunn en hann var efstur eftir forkeppni. Knapi á Þráni er Þórarinn Eymundsson og voru þeir að skora hæst fyrir tölt og skeið. Glúmur frá Dallandi er þriðji inn í úrslitin en knapi á honum er Sigurður Vignir Matthíasson. Þeir hlutu 8,69 og voru að fá m.a. 9,0 og 9,1 fyrir tölt.

Penni frá Eystra-Fróðholti og Auðunn Kristjánsson áttu frábæra skeiðsýningu, mikinn kraft sprett, sem tryggði þeim fjórða sætið. Forkur frá Breiðabólsstað og Atlas frá Hjallanesi áttu frábærar sýningar á tölti en báðum vantaði örlítið upp á skeiðið í dag. Þrátt fyrir það – frábærar sýningar og spennandi verður að sjá þá í A úrslitum.

Það eru örugglega einhverjir sem munu sakna Öskju frá Efstu-Grund en eftir forkeppni var hún önnur. Sýningin gekk ekki upp í dag en hún fetaði lítið og skeiðspretturinn klikkaði en sýndi hún ein mestu tilþrifin á brokki og tölti.

Hér fyrir neðan er myndband frá efstu þremur hestunum eftir milliriðil og niðurstöður.

 

Milliriðill – A flokkur – Niðurstöður
Sæti Hross Knapi Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Goði frá Bjarnarhöfn Daníel Jónsson Sörli 8,80
2 Þráinn frá Flagbjarnarholti Þórarinn Eymundsson Skagfirðingur 8,76
3 Glúmur frá Dallandi Sigurður Vignir Matthíasson Hörður 8,69
4 Penni frá Eystra-Fróðholti Auðunn Kristjánsson Geysir 8,69
5 Atlas frá Hjallanesi 1 Teitur Árnason Fákur 8,68
6 Sólon frá Þúfum Guðmundur Björgvinsson Geysir 8,68
7 Forkur frá Breiðabólsstað Flosi Ólafsson Borgfirðingur 8,67

8 Kjuði frá Dýrfinnustöðum Björg Ingólfsdóttir Skagfirðingur 8,67
9-10 Rosi frá Berglandi I Guðmar Freyr Magnússon Skagfirðingur 8,65
9-10 Glampi frá Kjarrhólum Daníel Jónsson Sörli 8,65
11 Kolskeggur frá Kjarnholtum I Sigurður Sigurðarson Sprettur 8,64
12 Sægrímur frá Bergi Viðar Ingólfsson Snæfellingur 8,59
13 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir Fákur 8,59
14 Hlekkur frá Saurbæ Pétur Örn Sveinsson Skagfirðingur 8,58
15 Hervar frá Innri-Skeljabrekku Gústaf Ásgeir Hinriksson Borgfirðingur 8,58

16 Jökull frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir Fákur 8,57
17 Korka frá Litlu-Brekku Anna Kristín Friðriksdóttir Hringur 8,56
18 Engill frá Ytri-Bægisá I Snorri Dal Sörli 8,55
19 Korgur frá Garði Bjarni Jónasson Skagfirðingur 8,54
20 Framtíð frá Forsæti II Elvar Þormarsson Geysir 8,52
21 Spennandi frá Fitjum Bjarni Jónasson Skagfirðingur 8,46
22 Völundur frá Skálakoti Sanne Van Hezel Sindri 8,44
23 Marel frá Aralind Sandra Pétursdotter Jonsson Jökull 8,38
24 Huginn frá Bergi Daníel Jónsson Snæfellingur 8,37
25 Stanley frá Hlemmiskeiði 3 Sigursteinn Sumarliðason Jökull 8,33
26 Stólpi frá Ási 2 Hlynur Guðmundsson Sörli 8,07
27 Megas frá Einhamri 2 Viðar Ingólfsson Dreyri 7,95
28 Telma frá Árbakka Hinrik Bragason Fákur 7,52
29 Askja frá Efstu-Grund Hlynur Guðmundsson Sindri 7,51
30 Örvar frá Gljúfri Jón Óskar Jóhannesson Jökull 0,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link