„Ég vissi að þetta væri hægt ef allt myndi ganga upp“
„Tilfinningin er mjög góð. Það er búinn að vera mikill undirbúningur fyrir mótið og ég er mjög glaður og ánægður með hryssuna,“ segir Hákon Dan Ólafsson Íslandsmeistari 2022 í fjórgangi í ungmennaflokki.
Hákon var á hryssunni Hátíð frá Hólaborg en hann hefur verið með hana í þjálfun nú í tvö ár. „Hún er með úrvals gangtegundir. Það er ofboðslegt svif og mikil gangskil í henni. Frábært geðslag. Vill endalaust vinna fyrir þig. Þetta er mikill karakter.“
Hákon var annar eftir forkeppni en náði efsta sætinu af Signýju Sól sem kom efst inn í úrslitin. „Það var markmiðið að vinna. Maður veit samt aldrei en það getur allt skeð í keppni og maður er aldrei öruggur með neitt. Ég vissi að hún gæti unnið þetta. Við áttum inni eftir forkeppnina en við vorum aðeins óheppinn þar. Hún fílar ekki harða velli og völlurinn var harður þá en hann var betri í dag. Ég vissi að þetta var hægt ef allt myndi ganga upp. Þetta er sterk keppni og yfirburða hestar í þessum úrslitum svo þetta er aldrei sjálfsagt.“
Niðurstöður – A úrslit – Fjórgangur – Ungmennaflokkur
1. Hákon Dan Ólafsson – Hátíð frá Hólaborg – Sleipnir
Hægt tölt 7,50 8,50 8,00 8,00 8,00
Brokk 8,00 8,00 8,50 7,00 8,50
Fet 7,50 6,50 8,00 8,00 8,00
Stökk 7,50 8,50 8,50 8,00 8,00
Greitt tölt 7,00 8,00 7,50 7,00 7,00
2 Signý Sól Snorradóttir Kolbeinn frá Horni I 7,67
Hægt tölt 8,00 8,50 7,00 7,50 8,00
Brokk 7,00 7,50 7,50 7,00 7,50
Fet 8,00 7,50 7,50 8,00 7,50
Stökk 7,50 7,50 7,00 7,50 7,50
Greitt tölt 7,00 8,00 8,00 8,00 8,00
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 7,30
Hægt tölt 7,50 8,50 7,50 8,00 7,50
Brokk 7,00 7,50 7,00 7,50 7,00
Fet 7,00 6,50 7,00 7,50 7,00
Stökk 7,00 6,00 7,50 7,50 7,50
Greitt tölt 7,00 7,50 7,50 8,00 6,50
4 Katla Sif Snorradóttir Bálkur frá Dýrfinnustöðum 7,10
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 7,50 7,00
Brokk 7,50 7,00 7,00 7,50 7,00
Fet 6,50 7,00 7,50 7,00 7,00
Stökk 7,00 7,00 6,50 7,50 7,00
Greitt tölt 7,50 7,00 7,50 7,50 7,00
5 Stefanía Sigfúsdóttir Lottó frá Kvistum 6,87
Hægt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Brokk 7,50 7,00 6,50 7,00 7,00
Fet 6,50 6,50 7,00 6,50 6,50
Stökk 7,00 6,50 6,50 7,00 7,00
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 7,50 7,00
6 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 6,20
Hægt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Brokk 8,50 7,50 7,50 8,00 8,00
Fet 6,00 5,00 6,50 5,50 6,00
Stökk 4,50 3,00 2,00 3,00 5,50
Greitt tölt 7,00 7,00 6,50 7,00 6,50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH