„Það er ekkert annað í boði en að vera ánægður eftir þennan árangur“
„Það er ekkert annað í boði en að vera ánægður eftir þennan árangur.“ segir Kristófer Darri Sigurðsson en hann varð Íslandsmeistari í 100 m. skeiði og samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki.
Kristófer keppti á Ás frá Kirkjubæ í gæðingaskeiði, fimmgangi og slaktaumatölti, Gnúp frá Dallandi í 100 m. skeiðinu, Flækju frá Heimahaga í fjórgangi, Sóloni frá Heimahagi í tölti og Ófeigi frá Þingnesi í slaktaumatölti. „Samanlagt var það sem var kannski mesta óvissan með og ég stefndi mest á sigur í fimmgangnum og skeiðinu. Fimmgangurinn klikkaði svo maður mætti bara sjóðandi heitur í skeiðið og tók það. Svakalega sáttur að fara heim með tvo titla.“
Kristófer varð Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum á Ás frá Kirkjubæ og í 100 m. skeiði á Gnúp frá Dallandi. „Ás er algjör gæðingur. Fimmgangshestur eins og maður vill hafa þá, klárhestur með skeiði eins og maður kallar þá nú til dags. Gnúpur eru algjör meistari. Honum finnst lang skemmtilegasta að skeiða þannig að hann hentar vel í skeiðgreinar.“
Næst á dagskrá hjá þessum knáa knapa er Norðurlandamót en þar mun hann keppa fyrir Íslandshönd. „Ég stefni með Lokason sem heitir Valur, ég fæ hann að láni hjá vini mínum Arnóri Dan. Mjög spenntur fyrir því,“ segir Kristófer að lokum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH