Sameiginlegt Hestaþing Hestamannafélaganna Kóps og Sindra
Sameiginlegt Hestaþing Hestamannafélaganna Kóps og Sindra verður haldið síðustu helgina í ágúst í Pétursey.
Hvort mótið verður 1 eða 2 dagar fer eftir skráningu
Mótið er opið í gæðingaflokkum, tölti og kappreiðum.
Keppt verður í eftirfarandi ef næg þátttaka næst:
Polla-, barna-, unglinga- og ungmennaflokki og A- og B-flokki gæðinga. Tölti T3 og T7.
100 m. flugskeiði, 150 m. skeiði, 300 m. brokki og 300 m. Stökki ef næg þáttaka fæst.
Skráningum lýkur kl. 23:59 mánudagskvöldið 22.ágúst nk.
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Kristínu Lár í síma 8980825
Dagskrá og ráslistar verða birtir á facebooksíðu og á heimasíðu Kóps og Sindra eftir að skráningu lýkur.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Stjórnir og mótanefndir Kóps og Sindra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH