Kynbótasýningar Hæst dæmdu hross ársins

  • 20. október 2022
  • Fréttir

Viðar frá Skör, knapi Helga Una Björnsdóttir Mynd: Nicki Pfau

Kynbótaárið 2022

Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir árið og skoða helstu afrek. Búið er að fara yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum hér á vef Eiðfaxa og nú ætlum við að skoða hæst dæmdu hross ársins.

Hæst dæmda hross ársins er Viðar frá Skör en hann setti heimsmet í vor þegar hann hlaut 9.04 í aðaleinkunn. Viðar er undan Hrannari frá Flugumýri og Vár frá Auðsholtshjáleigu. Annar er Sindri frá Hjarðartúni, sem setti heimsmet í hæstu hæfileikaeinkunn á Landsmótinu í sumar, en hann er með 8.99 í aðaleinkunn. Sindri er undan Stála frá Kjarri og Döguni frá Hjarðartúni. Þriðja er síðan Álfamær frá Prestsbæ sem hlaut 8,87 í aðaleinkunn í vor en hún er undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ.

Þegar rýnt er yfir listann má sjá að Konsert frá Hofi á þar tvo fulltrúa, Dívu frá Austurási (8.77) og Ganda frá Rauðalæk (8.72) og Sleipnisbikarhafinn á Landsmótinu í sumar, Sjóður frá Kirkjubæ, á þar líka tvo fulltrúa; Seðil frá Árbæ (8.75) og Þyrnirós frá Rauðalæk (8.67).

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þrjá lista; 10 hæst dæmdu hross ársins, 10 hæst dæmdu hryssurnar og 10 hæst dæmdu stóðhestana.

Tíu hæst dæmdu hross ársins

Hross Uppruni í þgf. Sýnandi Ae. Aldur Faðir Móðir
Viðar Skör Helga Una Björnsdóttir 9.04 8 vetra Hrannar frá Flugumýri II Vár frá Auðsholtshjáleigu
Sindri Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson 8.99 7 vetra Stáli frá Kjarri Dögun frá Hjarðartúni
Álfamær Prestsbæ Árni Björn Pálsson 8.87 7 vetra Spuni frá Vesturkoti Þóra frá Prestsbæ
Díva Austurási Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 8.77 6 vetra Konsert frá Hofi Prinsessa frá Litla-Dunhaga I
Salka Efri-Brú Árni Björn Pálsson 8.76 6 vetra Vökull frá Efri-Brú Vaka frá Efri-Brú
Seðill Árbæ Árni Björn Pálsson 8.75 7 vetra Sjóður frá Kirkjubæ Veona frá Árbæ
Gandi Rauðalæk Guðmundur Friðrik Björgvinsson 8.72 7 vetra Konsert frá Hofi Grain frá Árbæ
Hannibal Þúfum Mette Camilla Moe Mannseth 8.68 7 vetra Stjörnustæll frá Dalvík Grýla frá Þúfum
Þyrnirós Rauðalæk Guðmundur Friðrik Björgvinsson 8.67 7 vetra Sjóður frá Kirkjubæ Logadís frá Syðra-Garðshorni
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson 8.65 7 vetra Lexus frá Vatnsleysu Oktavía frá Feti

Tíu hæst dæmdu stóðhestar ársins

Skarpur Kýrholti Jakob Svavar Sigurðsson 8.63 7 vetra Skýr frá Skálakoti Skrugga frá Kýrholti
Seiður Hólum Konráð Valur Sveinsson 8.60 7 vetra Trymbill frá Stóra-Ási Ösp frá Hólum
Vigri Viðar Ingólfsson 8.59 7 vetra Arion frá Eystra-Fróðholti Þrift frá Hólum
Fróði Flugumýri Eyrún Ýr Pálsdóttir 8.57 5 vetra Hringur frá Gunnarsstöðum I Fýsn frá Feti
Hilmir Árbæjarhjáleigu II Jakob Svavar Sigurðsson 8.57 7 vetra Spuni frá Vesturkoti Elding frá Árbæjarhjáleigu II

Tíu hæst dæmdu hryssur ársins

Hross Uppruni í þgf. Sýnandi Ae. Aldur Faðir Móðir
Álfamær Prestsbæ Árni Björn Pálsson 8.87 7 vetra Spuni frá Vesturkoti Þóra frá Prestsbæ
Díva Austurási Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 8.77 6 vetra Konsert frá Hofi Prinsessa frá Litla-Dunhaga I
Salka Efri-Brú Árni Björn Pálsson 8.76 6 vetra Vökull frá Efri-Brú Vaka frá Efri-Brú
Þyrnirós Rauðalæk Guðmundur Friðrik Björgvinsson 8.67 7 vetra Sjóður frá Kirkjubæ Logadís frá Syðra-Garðshorni
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson 8.65 7 vetra Lexus frá Vatnsleysu Oktavía frá Feti
Kastanía Kvistum Árni Björn Pálsson 8.64 7 vetra Ómur frá Kvistum Katla frá Skíðbakka III
Dögun Austurási Árni Björn Pálsson 8.64 6 vetra Hákon frá Ragnheiðarstöðum Ör frá Strönd II
Auðlind Þjórsárbakka Teitur Árnason 8.64 7 vetra Loki frá Selfossi Gola frá Þjórsárbakka
Anastasía Svarfholti Árni Björn Pálsson 8.62 7 vetra Arður frá Brautarholti Bylgja frá Einhamri 2
Sögn Skipaskaga Helga Una Björnsdóttir 8.62 6 vetra Skaginn frá Skipaskaga Saga frá Skipaskaga
Telma Árbakka Hinrik Bragason 8.62 8 vetra Framherji frá Flagbjarnarholti Embla frá Oddgeirshólum
Gleði Hólaborg Þorgeir Ólafsson 8.62 6 vetra Forseti frá Vorsabæ II Hamingja frá Hæli

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link