Framboð til aðalstjórnar LH
Ólafur Gunnarsson er stjórnarmaður og gjaldkeri hestsamannafélagsins Jökuls og býður sig fram til stjórnar Landsamband hestmannafélaga
Ég heiti Ólafur Gunnarsson og er fæddur 1963. Á mínum uppvaxtarárum var ég ellefu sumur í sveit í Biskupstungum þar sem ég kynntist hestamennsku og fór alloft á fjall á þessum árum. Árið 2020 fluttum við fjölskyldan til Íslands eftir að hafa búið í Bandaríkjunum í tuttugu og fimm ár. Í Bandaríkjunum fór ég í framhaldsnám, stofnaði og byggði upp tæknifyrirtæki sem ég seldi 2020. Fjölskyldan hefur nú sest að á Helgastöðum í Biskupstungum þar sem við erum komin með tólf hross, tuttugu hænur, kött og tvo hunda og erum að byggja upp aðstöðu til að stunda hestamennsku og jafnvel annan búrekstur í framtíðinni. Það má því segja að ég sé kominn aftur til upprunans og nýtur fjölskyldan þess að vera orðin frístunda bændur. Fljótlega eftir flutninginn að Helgastöðum fór ég að taka þátt í félagsmálum hestamanna í sveitinni og í framhaldinu var ég kosinn gjaldkeri sameinaðs hestamannafélags uppsveitanna sem heitir Hestamannafélagið Jökull og telur ríflega 630 félagsmenn. Þrátt fyrir að vera ekki gamall í hettunni þegar kemur að félagsmálum hestamanna finn ég að reynsla mín af uppbyggingu og stjórnun stórfyrirtækis ytra hefur nýst mér mjög vel í þeim störfum sem ég hef tekið að mér fyrir Jökul. Ég veit að sú reynsla mun nýtast mér vel í störfum fyrir allt hestafólk ef ég næ kjöri í stjórn LH. Ég læri daglega eitthvað nýtt þegar kemur að hestamennskunni og þeim ævintýraheimi sem hún býður upp á bæði hinum almenna iðkanda sem og keppnisfólki. Ég mun leggja mig allan fram um að auka útbreiðslu og hróður íslenska hestsins á öllum vígstöðvum og er tilbúinn að bretta upp ermar til að vinna fyrir ykkur að því verkefni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH