„Ný reiðhöll mun gjörbreyta öllu hjá okkar félagi“
Þann 29. nóvember var ritað undir samning milli Hafnarfjarðarbæjar, Eyktar og Sörla um byggingu nýrrar reiðhallar fyrir Sörla. Framkvæmdir eiga að hefjast í apríl 2023 og áætlað er að þeim ljúki árið 2025. Áætlanir gera einnig ráð fyrir því að reiðgólf hallarinnar verið tilbúið til notkunar í janúar 2024, þó enn sé unnið í öðrum hlutum verksins.
“Við erum alltaf að ná einhverjum áföngum í þessari vegverð með byggingu reiðhallarinnar, en reynslan sýnir nú að það er ekkert komið fyrr en búið er að skrifa undir samning um verkið, sem
gerðist á þriðjudaginn.” Sagði Atli Már Ingólfsson, formaður Sörla.
“Ný reiðhöll mun gjörbreyta öllu hjá okkar félagi og vonandi líka fyrir mótahald innandyra á höfuðborgarsvæðinu, þar til annað stærra hús kemur til sögunnar”
Nýja reiðhöllin með reiðgólf 72 x 35 verður tengd eldri reiðhöll, reiðgólf 20 x 40, með tengibyggingu. Gert er ráð fyrir því að knapar geti hitað upp í gömlu höllinni og riðið síðan beint inn í nýju höllina til keppni. Einnig er hönnunin þannig að það verður möguleiki á að leggja hesta á skeið frá gömlu reiðhöllinni um tengibygginguna inn í nýju reiðhöllina og út. Ef sá möguleiki verður notaður.
Þeir sem komið hafa á Sörlastaði í dag þekkja hve gaman er að geta fylgst með keppnum eða kynbótasýningum frá 2. hæð núverandi hallar. Nýja byggingin mun færa okkur enn nær vellinum og
stærri og fleiri gluggar munu enn auka á þennan frábæra möguleika. Einnig verða gluggar meðfram allri langhlið reiðhallarinnar sem vís út að beinu brautinni og þaðan hægt að ganga beint út á
hellulagða stétt ofan við nýja áhorfendabrekku við völlinn.
Hugmynd hönnuða og okkar í Sörla var að láta inni- og útiáhorfendaaðstöðu renna saman. Ég held að það verði dásamlegt að sitja þarna í skjóli við höllina, fá sér að borða og njóta þess sem fram fer á brautinni.
Í nýju byggingunni er einnig gert ráð fyrir rými fyrir hestatengda þjónustu, svo sem dýralækni, sjúkraþjálfun, vatnsbrettaþjálfun, verslun eða annað tengt starfsemi af þessu tagi.
Annar áfangi bygginarinnar er síðan að klára félagsaðstöðu, veislusal félagsins og tækjageymslu.
“Við teljum að með tilkomu þessarar byggingar muni verða sett ný viðmið fyrir samskonar hús. Þetta mun hjálpa félaginu að bjóða upp á enn betra starf í uppbyggingu barna- og nýliðunarstarfsins og auka möguleika á kennslu og föstum æfingum fyrir félagsmenn í Sörla og þá sem vilja koma til okkar.
Það er líka rétt að nefna það að nýlega voru auglýstar nýjar lóðir á félagssvæðinu, sem ættu að henta flestum þeim sem vilja byggja sér nýtt hesthús. Þetta eru reyndar síðustu lóðirnar sem í boði verða á svæði Sörla, samkvæmt gildandi deiliskipulagi og ekki auðvelt að sjá að hægt verði að bæta við síðar. Svo það er um að gera fyrir áhugasama aðila að tryggja sér lóð”.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH