Möndlugrauturinn er uppáhalds jólahefðin hans Jóns
Jón Ársæll Bergmann er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hann kemur úr hestamannafélaginu Geysi en hann býr í Bakkakoti í Landeyjunum þar sem hann þjálfar og temur hesta.
Jón Ársæll er viðmælandi í Jólamola dagsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég er að þjálfa og temja hesta.
Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni með Rikka frá stóru-gröf ytri í skeiðgreinar og Völku frá íbishóli líka í skeiðgreinar.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Ég væri Elf.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Möndlugrauturinn á aðfangadag.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Þegar þú Blikkar.
Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Home alone er sú allra besta.
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Hamborgarahrygg.
Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Er ekki farinn að hugsa svo langt.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Að horfa á jólamynd á Þorláksmessu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH