Diva hæst dæmda hrossið fætt í Svíþjóð

  • 29. desember 2022
  • Fréttir

Diva från Ådalen

163 hross voru sýnd í Svíþjóð

FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum.  Samkvæmt tölum FEIF er Svíþjóð það land sem er með fjórða mesta fjölda af skráðum hrossum á lífi eða 26.078 talsins. Ef þetta eru rétt uppgefnar tölu hefur talsverð fækkun átt sér stað á milli ára í Svíþjóð.

Fjöldi lifandi hrossa sem eru skráð í Danmörku síðustu fimm ár

163 hross voru sýnd í Svíþjóð í ár á fimm kynbótasýningum. Það er talsvert færri hross en hefur verið undanfarin ár. Af þessum 163 hrossum eru 153 skráð með fullnaðardóm í WorldFeng og 106 af þeim eru hross fædd í Svíþjóð. Flest hross voru skráð á kynbótasýninguna Romme 2 sem var haldin 21. – 23 júní. Dómarar á sýningunni voru Guðlaugur V. Antonsson (IS), John Siiger Hansen (DK) og William Flügge (DK).

Fjöldi hrossa sem hafa hlotið dóm síðustu fimm árin í Svíþjóð

Efsta hrossið sem sýnt var í Svíþjóð er Gljátoppur frá Miðhrauni en hann hlaut 8,50 í aðaleinkunn, hann var jafnframt með hæstu hæfileika einkunnina 8,59. Hæst dæmda sænsk fædda hrossið er Diva från Ådalen en hún hlaut 8,36 í aðaleinkunn, 8,25 fyrir hæfileika og 8,56 fyrir sköpulag sem var jafnframt hæsta sköpulagseinkunnin gefin í ár í Svíþjóð.

Meðalaldur þeirra hrossa sem hlutu fullnaðardóm í Svíþjóð er 6,92 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 7,95, hæfileikaeinkunnar er 7,47 og aðaleinkunnar 7,64. 18 hross hlutu fyrstu verðlaun, 12 af þeim eru fædd í Svíþjóð.

Erlingur Erlingsson sýndi flest hross í Svíþjóð eða 36 talsins en næstur á eftir honum er Máni Hilmarsson með 17 hross

Tíu hæst dæmdu hrossin í Svíþjóð

Fæðingarnúmer  Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi Aðaleinkunn
IS2015137725 Gljátoppur Miðhrauni Máni Hilmarsson 8,50
SE2016271032 Díva Ådalen Erlingur Erlingsson 8,36
IS2013286959 Embla Litlu-Tungu 2 Erlingur Erlingsson 8,27
SE2015170427 Sókrates Sundabakka Vignir Jónasson 8,25
IS2013237487 Berglín Bergi Sigurjón Örn Björnsson 8,24
SE2012104455 Alvar Salomea Vignir Jónasson 8,13
IS2016237880 Sólkatla Hömluholti Máni Hilmarsson 8,11
SE2017215920 List Lilla Sträckås Erlingur Erlingsson 8,11
IS2016187728 Glær Dalbæ Erlingur Erlingsson 8,08
SE2015270299 Jófríður Kejsarängen Máni Hilmarsson 8,05

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link