Lukka efsta hrossið í Noregi
FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum. Samkvæmt tölum FEIF er Noregur fjórða landið á eftir okkur í fjölda á skráðum hrossum á lífi. 11.372 hross eru sögð vera í Noregi en fjöldi hrossa í Noregi hefur verið nokkuð stöðugur.

Fjöldri skráðra hrossa á lífi í Noregi síðast liðinn 5 ár
45 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Noregi í ár á þremur kynbótasýningum. Síðustu þrjú ár hefur fjöldi sýndra hrossa verið svipaður. Fimm hross hlutu fyrstu verðlaun í Noregi, öll voru þau fædd í Noregi fyrir utan eitt innflutt frá Íslandi. Flest hross voru sýnd á kynbótasýningunni í Telemark sem haldin var 13. – 15. maí. Dómarar á sýningunni voru Elisabeth Trost (IS), Heimir Gunnarsson (IS) og Nina Bergholtz (SE).
Ræktunarbúið Bergkåsa ræktaði efstu hryssuna í Noregi en af tíu efstu hrossunum í Noregi eru fimm frá búinu, öll sýnd af Elvari Þormarssyni. Hæst dæmda hrossið er Lukka fra Bergkåsa, 9 vetra, undan Garra frá Reykjavík og Þróuni fra Bergkåsa. Fyrir sköpulag hlaut hún 7,94 og fyrir hæfileika 8,42 en það er hæsta hæfileikaeinkunn sem gefin var í Noregi. Í aðaleinkunn hlaut hún 8,25.
Hæstu sköpulagseinkunnina hlaut Valíant frá Rauðalæk en hann hlaut fyrir sköpulag 8,46 og fyrir hæfileika 7,52 sem gerir 7,85 í einkunn. Ágúst er undan Organista frá Horni og Logadís frá Syðra-Garðshorni.
Valíant frá Rauðalæk Mynd: Stall Jakopsgard
Meðalaldur hrossanna sem hlutu fullnaðardóm í Noregi er 6,95 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 8,04, hæfileikaeinkunnar er 7,54 og aðaleinkunnar 7,71. Sjö hross voru sýnd sem voru fjögurra vetra og jafnmörg fimm vetra.
Elvar Þormarsson sýndi flest hrossin eða tíu talsins en næstur á eftir honum er Stian Pedersen með átta hross.
Tíu hæst dæmdu hrossin í Noregi
| Fæðingarnúmer | Nafn | Uppruni í þgf, | Sýnandi | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn |
| NO2013208162 | Lukka | Bergkåsa | Elvar Þormarsson | 7,94 | 8,42 | 8,26 |
| IS2014184882 | Bjartur | Strandarhjáleigu | Elvar Þormarsson | 8,45 | 8,13 | 8,24 |
| NO2015204273 | Vatnalilja | Kringeland | Tryggvi Björnsson | 8,26 | 7,96 | 8,07 |
| NO2016208079 | Milljón | Bergkåsa | Elvar Þormarsson | 8,09 | 8,05 | 8,06 |
| NO2015115090 | Vinningur | Jakobsgården | Stian Pedersen | 8,26 | 7,92 | 8,04 |
| NO2016208075 | Tilvera | Bergkåsa | Elvar Þormarsson | 8,19 | 7,85 | 7,97 |
| NO2016208078 | Framsýn | Bergkåsa | Elvar Þormarsson | 8,14 | 7,77 | 7,9 |
| NO2015208121 | Sigurrós | Bergkåsa | Elvar Þormarsson | 8,16 | 7,75 | 7,89 |
| NO2016111071 | Sesar | Skarstad | Steinar Clausen Kolnes | 8,25 | 7,68 | 7,88 |
| IS2014281915 | Fanney | Rauðalæk | Steinar Clausen Kolnes | 8,14 | 7,75 | 7,88 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH