“Sestur á varamannabekkinn”
Daníel Jónsson er snúinn aftur í Víðidalinn og að hans sögn sestur í helgan stein. “Nú er ég sestur á varamannabekkinn og kem bara inn á þegar aðrir meiðast,” segir hann og hlær.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég er í gír. Ég veiktist aðeins í vor og er að koma til baka, sterkari en áður. Ég er með 20 hesta á húsi hér í Víðidalnum. Ég var að leita mér að jörð til kaups svo kom boð um að fá þetta hesthús hér í dalnum og ég tók því. Ég er á leiðinni í sveit, ég er kominn með það mikla ræktun að ég verða að koma mér fyrir einhvers staðar þar sem mér líður vel, eignast einhvern griðarstað.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Ekkert, ég er svakalega lítið jólabarn. Það kemur mér í jólaskap að sjá börnin mín gleðjast þegar þau taka upp pakkana á aðfangadag.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem the Elf eða the Grinch?
Mér finnst þenslan í kringum jólin rugl og þessi útgjöld og allt þetta algjört rugl. Mér finnst rugl að vera gefa fullorðnu fólki jólagjafir. Mér finnst frábært að gefa krökkum jólagjafir. Mamma og pabbi sögðu alltaf – hættið að gefa okkur jólagjafir við eigum allt. Besta jólagjöfin til okkar er að við komum öll saman með fjölskylduna. Ég er soldið þar, samveran.
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Þær eru svo margar, ég er orðinn svo gamall. Ef ég á að nefna eina ætli það hafi ekki bara verið þegar ég fékk fyrsta bílinn minn þegar ég var sex ára.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Ég sakna þess alltaf þegar amma og afi voru með á jóladag hangikjöt og uppstúf. Að fara í hádeginu til föðurömmu og -afa í Hlíðunum, sakna þess alltaf. þau eru látin blessunin. Núna hittumst við systkin alltaf annan í jólum hjá mömmu og pabba. Það að hittast á jólunum og vera fjölskylda saman það er dýrmætt.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Ég held að Kóki sé ekki búinn að semja það.
Hvert er þitt uppáhalds jólamynd?
Landsmótið 1994
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Ég elda vanalega á aðfangadagskvöld og í ár erum við með í kalkún, annars er ég til hvað sem er, bara að það sé gott. Hér áður fyrr var hefðin alltaf hamborgarhryggur, en eftir að ég stofnaði fjölskyldu þá hefur engin hefð verið. Ég er búin að eiga svo margar konur og misjafnar hefðir með þeim. Ég gæti lent í sænskum kjötbollum eftir nokkur ár. Ég veit ekkert um það.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Að fjölskyldunni minni muni líða vel.
Hvernig eru áramótin? Ertu sprengjumaður?
Nei ég má ekki sprengja upp. Ég er alveg svartfullur öll áramótin. Neinei bara grín. En já ég geri það fyrir krakkana þó mér finnist það algjört rugl. Sprengja upp peninga finnst mér vitleysa. Ég geri það samt fyrir börnin, kaupi stjörnuljós og við borðum eitthvað saman. Horfum á aðra gleðja hina.
Einhver markmið fyrir 2023 ?
Ég set mér engin markmið. Það gekk eiginlega aldrei. Ég er svo geggjaður að ég hleyp alltaf úr einu í annað. Best er að setja mér bara það markmið að reyna halda heilsu og standa mig í því sem ég tek að mér á nýju ári.
“Gleðileg jól kæru hestamenn og haldið væntingunum í lágmarki því þá verða vonbrigðin minni,” segir Daníel að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH