Ort um fáka
Skáld og hagyrðingar hafa frá upphafi Íslandsbyggðar ort um samskipti sín við hestinn. Sérstaklega var það vinsæl iðja á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar. Menn ortu um hin ýmsu málefni sem tengdust hestum og gjarnan var hálfgerð ádeila í kvæðunum. Gunnar Bjarnason, sem var hrossaræktarráðunautur á árunum 1940-1961 var oft á tíðum yrkisefni hestamanna á meðan hann sinnti því starfi. Árið 1941 ferðaðist hann á mótorhjóli á hrossasýningar í Skagafirði. Við það tækifæri orti Stefán Vagnsson, þá bóndi á Hjaltastöðum og sýningarstjóri í á hrossasýningu í Skagafirði þetta kvæði:
„Talaði fátt um tölt og skeið
og tilþrif gæðinganna.
Sinni mótormeri reið
milli sýninganna.“
Heimild : ,,Fjörið blikar augum í…“ – Safn hestavísna eftir Albert Jóhannsson
Ef að þú lumar á skemmtilegri hestavísu sendu á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH