Frumtamninganámskeið

  • 23. september 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Námskeiðið spannar fjórar vikur.

Hestamannafélagið Hörður og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamninganámskeið sem hefst mánudaginn 6. október nk. Hver þátttakandi kemur með sitt tryppi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar s.s. atferli hestsins, leiðtogahlutverk, fortamningu á tryppi, undirbúning fyrir frumtamningu og frumtamningu.

Námskeiðið spannar fjórar vikur og verður á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
Verð 35.000. Kennt verður í 4-5 manna hópum en bóklegir tímar verða sameiginlegir. Nemendur fylgjast með hvor öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu. 

Harðarfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.

Fræðslunefnd áskilur sér þann rétt að fella námskeiðið niður ef ekki næst næg þátttaka

Skráning í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi):
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add 

1. Velja námskeið. 
2. Velja hestamannafélag (Hörður).
3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala er ekki í félagaskrá þarf að fara inná hordur.is eða síðu annars hestamannafélags og sækja um aðild).
4. Velja atburð.
5. Setja í körfu. 
6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link