Opnar fleiri möguleika
Félagar í hestamannafélaginu Funa í Eyjafjarðarsveit hafa sýnt hinni nýju keppnisgrein TREC mikinn áhuga frá því hún var fyrst kynnt fyrir félagsmönnum síðastliðið haust og hafa um 20 manns á öllum aldri stundað í þróttina á þessu ári, margir alveg síðan í janúar. Áhersla var lögð á fyrstu tvær greinarnar, þ.e. gangtegundakeppnina og þrautabrautina. Æfingatímabilið endaði svo með keppni í þessum tveimur greinum og var hún haldin undir berum himni á Melgerðismelum þar sem TREC áhugamenn hafa komið upp flottri þrautabraut og var skeiðvöllurinn notaður fyrir gangtegundakeppnina. Keppt var í barnaflokki, unglingaflokki og fullorðinsflokki en einnig var boðið upp á opinn flokk þar sem einungis var keppt í þrautabrautinni. Keppnin var haldin samhliða hinni árlegu bæjakeppni Funa þann 31. ágúst og byrjaði á gangtegundakeppni kl 10 um morguninn. Leyfar af fellibyl og moldrok settu sinn svip á keppnina og fór svo að fresta varð gangtegundakeppni í barna- og unglingaflokki en það er nú einu sinni þannig að Melgerðismelar standa einstaklega vel af sér allskyns veðurofsa og um hádegi var veðrið orðið mjög svo ákjósanlegt til hverskonar útreiða. Bæjakeppnin var því haldin ótrufluð og eftir veglegt hlaðborð að hætti Funamanna var keppni í þrautabraut og þó nokkuð af áhorfendum sem fylgdust spenntir með þessari frumraun.
Hin framandi skammstöfun TREC er mörgum íslendingum ókunn en hún kemur frá Frakklandi og stendur fyrir Techniques de Randonnée Équestre de Compétition. Um er að ræða hestaíþróttagrein sem heyrir undir heimssambandið FITE (International Equestrian Tourism Federation) sem við Íslendingar urðum aðilar að á síðasta ári og er það stefna LH að efla þessa grein hér á landi. Keppnisgrein þessi hefur nefnilega notið mikilla vinsælda erlendis, sérstaklega meðal frístundareiðmanna, og er því kærkomin viðbót við þær keppnisgreinar sem hafa nú þegar fest sig í sessi hérlendis.
Þetta er þrískipt keppnisgrein þar sem sami hesturinn er notaður í allar þrjár greinar og miðar að því að finna sterkasta parið út úr þessum þremur þáttum í lokin. Um er að ræða gangtegundakeppni þar sem riðið er hratt fet og hægt stökk, þrautabraut þar sem farið er í gegnum 16 mismunandi þrautir sem reyna virkilega á traust milli manns og hests og að lokum nokkurskonar víðavangs-ratleik þar sem farnir eru 12-45 km.
Fyrir keppendur í fullorðinsflokki, sem kepptu bæði í gangtegundakeppni og þrautabraut voru samanlagt 240 stig í pottinum (60 stig fyrir gangtegundakeppnina og 160 fyrir þrautabrautina) og urðu úrslitin eftirfarandi:
1. sæti með 176 stig: Anna Rappich á Bleikju frá Saurbæ, 18 v.
2. sæti með 150 stig: Anna Sonja Ágústsdóttir á Vonarstjörnu frá Möðrufelli, 7 v.
3. sæti með 149 stig: Steingrímur Magnússon á Blesa frá Skjólgarði, 10 v.
Fyrir keppendur í barnaflokki, unglingaflokki og opnum flokki, þar sem einungis var keppt í þrautabrautinni, voru 160 stig í pottinum og urðu úrslitin eftirfarandi:
Barnaflokkur
1. sæti með 144 stig: Hulda Siggerður Þórisdóttir á Röskvu frá Húsavík, 11 v.
2. sæti með 132 stig: Bergþór Bjarmi á Villimey frá Saurbæ, 19 v.
3. sæti með 128 stig: Sindri Snær Stefánsson á Báru frá Árbæjarhjáleigu II, 11 v.
Unglingaflokkur
1. sæti með 143 stig: Gunnhildur Erla Þórisdóttir á Kilju frá Selá, 7 v.
2.-3. sæti með 141 stig: Laufey Helga María Hlynsdóttir á Lillu frá Brúnum, 9 v. og Ágúst Máni Ágústsson á Sól frá Dalvík, 15. v.
Opinn flokkur
1. sæti með 131 stig: Hulda Sigurðardóttir á Máney frá Samkomugerði II, 13 v.
2. sæti með 104 stig: Sigríður Bjarnadóttir á Skugga frá Egilsstaðabæ, 22 v.
3. sæti með 98 stig: Rósa Hreinsdóttir á Neista frá Halldórsstöðum, 18 v.
Það besta við TREC er hugsanlega að það opnar möguleika fyrir svo miklu fleiri knapa og hesta til að þjálfa markvisst og taka þátt í keppni. TREC er fyrir alla knapa sem hafa ágætis jafnvægi á hesti og fyrir alla hesta sem eru í andlegu jafnvægi til að læra nýja hluti. Þeir sem sótt hafa námskeið í TREC á vegum Funa síðastliðna mánuði eru algjörlega sammála um að TREC styrki samband manns og hests svo um munar og geri hvern hest að eins góðum reiðhesti og félaga og hugsast getur. Steingrímur Magnússon er búinn að stunda TREC frá því í janúar og hefur þetta um íþróttina að segja: „Ótrúlega skemmtileg keppni þar sem samband knapa og hests skiptir miklu máli. Ég hef mjög litla reynslu af hefðbundinni keppni, get þó sagt að þetta er ekki síður skemmtilegt og alveg ónauðsynlegt að vera með hágæða keppnishest til að blanda sér í baráttuna. Einnig kynnist maður hestinum allt öðruvísi og ég verð að segja á mun jákvæðari hátt því þarna þurfa báðir að vera vel einbeittir og sammála um verkefnið. Vona svo sannarlega að þessi keppni eigi eftir að hasla sér völl hér á landi.“
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir hefur alfarið séð um kennslu í fullorðinsflokki og hér er hennar viðhorf til þessarar nýju greinar: „Trec námskeiðið er án efa það skemmtilegasta sem ég hef kennt. Námsefnið mjög fjölbreytt og krefjandi og reynir á knapa og hest í hverju og einu atriði. Efnið er skemmtilegt sem gerir það að verkum að fólk verður mjög metnaðarfullt að ná sem lengst með hestinn sinn. Vona innilega að þetta sé komið til að vera sem viðbót við móta og námskeiðaflóruna okkar hérna á Íslandi. Hlakka a.m.k mikið til að kenna Trec aftur.“