Aðalfundur GDLH
Aðalfundur GDLH fór fram í húsakynnum ÍSÍ föstudaginn 4.nóvember. Mætingin var fín þó það væri að sjálfsögðu betra að allir félagsmenn myndu mæta og koma skoðunum sínum á framfæri. Farið var yfir helstu mál síðasta starfsárs á gagnrýnan hátt og málin rædd á málefnalegum grundvelli.
Magnús Sigurjónsson gaf sig einn fram til starfa sem formaður félagsins og var kosinn með lófaklappi. Davíð Jónsson vék úr stjórn og í hans stað tók Ágúst Hafsteinsson við sæti í stjórn. Vill GDLH þakka Davíð Jónssyni fyrir sitt framlag til félagsins síðastliðin ár.
Stjórn gæðingadómarafélagsins fyrir komandi starfsár er því þannig skipuð:
Formaður; Magnús Sigurjónsson
Ritari; Gísli Guðjónsson
Gjaldkeri; Pétur Vopni Sigurðsson
Meðstjórnendur; Ágúst Hafsteinsson og Ingibergur Árnason
Varamenn: Helga Claessen og Stefán Ágústsson
Mörg spennandi verkefni eru framundan hjá GDLH. Námskeiðahald erlendis sem og upprifjunarnámskeið hér heima. Nú þegar er vinna hafin við nýja heimasíðu sem á að auðvelda aðgengi félagsmanna og annarra að öllu sem viðkemur gæðingakeppni. Stjórn GDLH lítur björtum augum fram á veginn og hlakkar til að takast á við komandi starfsár með sínum félagsmönnum.
f.h. stjórnar
Gísli Guðjónsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH