Elvar hlaut FT fjöðrina
Elvar Þormarsson hlaut FT fjöðrina á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna. Elvar fékk fjöðrina fyrir sýningu sína á Fjalladís frá Fornusöndum í gæðingaskeiði í meistaraflokki. Þau urðu Íslandsmeistarar í greininni þriðja árið í röð og hlutu hæstu einkunn sem gefin hefur verið á Íslandi í gæðingaskeiði 9,0.
Eftifarandi texti var lesinn upp við verðlaunaafhendinguna:
„Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests.
Hesturinn sé sjálfberandi, sterkur og mjúkur. Reiðmennska
einkennist af samspili og léttleika.“„FT Fjöðrin er jafnan veitt á stærstu mótum keppnistímabilsins,
Íslands- og Landsmótum.“„Elvar Þormarsson fær FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Fjalladís frá
Fornusöndum í gæðingaskeiði meistara. Saman hafa þau sýnt
yfirburði sína í gæðingskeiði og orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð.
Sýningarnar einkennast af krafti, léttleika og mýkt. Reiðmennskan
frábær þar sem hún er í senn sanngjörn, án átaka en til mikilla
afkasta. Það geislar af þeim saman á brautinni.“„Elvar er jafnframt fyrirmynd bæði innan vallar sem utan. Ávallt
prúður og sýnir drenglyndi.“„Innilegar hamingjuóskir Elvar þú ert sannarlega vel að þessum
verðlaunum kominn!“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH