Íslandsmót Glódís Rún fékk FT fjöðrina

  • 2. júlí 2023
  • Fréttir
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna á Selfossi.

Glódís Rún Sigurðardóttir hlaut FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Sölku frá Efri-Brú í fimmgangi í ungmennaflokki

Það var Sylvía Sigurbjörnsdóttir, formaður FT, sem afhenti henni fjöðrina og við tilefnið var lesinn upp eftirfarandi texti;

„Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests. Hesturinn sé sjálfberandi, sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.

FT Fjöðrin er veitt á stærstu mótum keppnistímabilsins, Íslands- og Landsmótum.

Glódís Rún Sigurðardóttir hlýtur FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Sölku frá Efri-Brú í fimmgangi ungmenna. Hún hefur um árabil verið í fremstu röð knapa frá því að hún var í barnaflokki.

Glódís Rún og Salka eru glæsilegt par með fallega útgeislun. Þar fer saman léttleiki og gott samspil.

Glódís Rún hefur fallega ásetu og er fyrirmynd bæði innan vallar sem utan.

Innilegar hamingjuóskir Glódís Rún Sigurðardóttir þú ert sannarlega vel að þessum verðlaunum komin.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link