Sys Pilegaard og Abel fra Tyrevoldsdal efst

  • 27. júlí 2023
  • Fréttir

Sys Pilegaard og Abel fra Tyrevoldsdal

WorldRanking listi FEIF í tölti T1

Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 10 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.

Efst á WR listanum í tölti er Sys Pilegaard á Abel fra Tyrevoldsdal með meðaltalið 8.79. Sys keppir fyrir Danmörku. Árni Björn Pálsson á Ljúf frá Torfunesi á þó hæstu einkunnina sem gefin hefur verið í forkeppni á WR móti síðustu tvö árin en þeir hlutu 9.07 á Landsmótinu á Hellu í fyrra. Þeir eru ekki að fara keppa á Heimsmeistaramótinu.

Fyrir hönd Íslands keppa þau Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi og Viðar Ingólfsson á Þór frá Stóra-Hofi. Jóhanna og Bárður eru í öðru sæti á listanum en ef árslistinn er skoðaður er þau efst á honum og með hæstu einkunnina sem gefin hefur verið í forkeppni á árinu eða 8,90. Á árslistanum eru Viðar og Þór í fimmta sæti.

Það verður hörkuspennandi að fylgjast með töltinu á Heimsmeistaramótinu.

 

Rider Countries Marks
1 Sys Pilegaard
Abel fra Tyrevoldsdal
DE DK NC 8.93; 8.77; 8.67 (of 8) 8.790
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir
Bárður frá Melabergi
IS 8.90; 8.73; 8.63 (of 6) 8.753
3 Jóhann R. Skúlason
Evert fra Slippen
DE DK NO also 4: 8.457
8.87; 8.67; 8.63 (of 9)
8.723
4 Jóhann R. Skúlason
Sílas vom Forstwald
DE DK also 3: 8.723
8.57; 8.43; 8.37 (of 8)
8.457
5 Páll Bragi Hólmarsson
Vísir frá Kagaðarhóli
IS 8.57; 8.43; 8.33 (of 6) 8.443
6 Helga Una Björnsdóttir
Fluga frá Hrafnagili
IS 8.50; 8.43; 8.30 (of 8) 8.410
7 Frederikke Stougård
Austri frá Úlfsstöðum
DE DK NC 8.43; 8.43; 8.30 (of 11) 8.387
8 Lisa Schürger
Kjalar frá Strandarhjáleigu
DE MC also 37: 7.790, 56: 7.610
8.43; 8.30; 8.23 (of 4)
8.320
9 Frauke Schenzel
Jódís vom Kronshof
DE DK MC 8.37; 8.30; 8.27 (of 6) 8.313
10 Kristján Magnússon
Óskar från Lindeberg
NC SE 8.30; 8.23; 8.20 (of 7) 8.243
10 Viðar Ingólfsson
Þór frá Stóra-Hofi
IS also 52: 7.633
8.40; 8.33; 8.00 (of 7)
8.243
12 Nils Christian Larsen
Flaumur frá Sólvangi
DK NC NL NO 8.37; 8.17; 8.07 (of 8) 8.203
13 Jamila Berg
Toppur frá Auðsholtshjáleigu
NC SE 8.33; 8.27; 8.00 (of 4) 8.200
13 Veronika Kremmer
Ísbjörn vom Vindstaðir
AT MC 8.30; 8.20; 8.10 (of 6) 8.200
15 Teitur Árnason
Taktur frá Vakurstöðum
IS also 19: 8.080, 20: 8.043, 32: 7.833
8.30; 8.13; 8.07 (of 5)
8.167
16 Jakob Svavar Sigurðsson
Tumi frá Jarðbrú
IS 8.20; 8.17; 8.07 (of 7) 8.147
17 Gabrielle Severinsen
Tígull fra Kleiva
NC NO 8.37; 8.03; 8.00 (of 7) 8.133
18 Ragnhildur Haraldsdóttir
Úlfur frá Mosfellsbæ
IS 8.20; 8.07; 8.00 (of 6) 8.090
19 Teitur Árnason
Dússý frá Vakurstöðum
IS also 15: 8.167, 20: 8.043, 32: 7.833
8.37; 8.00; 7.87 (of 3)
8.080
20 Leó Geir Arnarson
Matthildur frá Reykjavík
IS 8.23; 8.03; 7.87 (of 4) 8.043
20 Teitur Árnason
Sigur frá Laugarbökkum
IS also 15: 8.167, 19: 8.080, 32: 7.833
8.20; 8.10; 7.83 (of 3)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar