Hringur vakti lukku

  • 22. júní 2013
  • Fréttir
Hringur vakti lukku

Það var 4 vetra stóðhesturinn Hringur frá Gunnarsstöðum sem vakti einna mesta athygli á yfirlitinu hér á FM2013. Hringur hlaut 8,08 fyrir kosti aðeins 4 vetra gamall klárhestur en hann hlaut 9,0 fyrir brokk, stökk, vilja/geðslag og fegurð í reið. Fyrir sköpulag hefur hann m.a hlotið 8,5 fyrir háls, bak og samræmi.

Hringur er undan Heiðursverðlaunshestinum Hróðri frá Refsstöðum og Andvaradótturinni Ölmu frá Skarði, en hún hlaut sjálf 8,21 í aðaleinkunn kynbótadóms.

IS2009167169 Hringur frá Gunnarsstöðum I
Örmerki: 352206000038665
Litur: 2524 Brúnn/milli- stjörnótt hringeygt eða glaseygt
Ræktandi: Ragnar Már Sigfússon
Eigandi: Ragnar Már Sigfússon
F.: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum
Ff.: IS1992135930 Léttir frá Stóra-Ási
Fm.: IS1989235990 Rán frá Refsstöðum
M.: IS2001286751 Alma Rún frá Skarði
Mf.: IS1990184730 Andvari frá Ey I
Mm.: IS1984286037 Diljá frá Skarði
Mál (cm): 143 – 132 – 139 – 64 – 140 – 37 – 48 – 43 – 6,4 – 29,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,4
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 7,0 = 8,11
Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 7,0 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,09
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Þórarinn Ragnarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link