Aukin gjaldtaka
Nú er nýr herra tekin við í ráðgjafaþjónustu fyrir hrossaræktendur. Fram að síðustu áramótum var yfirumsjón skýrsluhalds í hrossarækt á hendi Bændasamtaka Íslands (BÍ) og framkvæmt að stóru leiti af ráðunautum Búnaðarsambanda víða um land.
Nú um áramót tók til starfa opinbert einkahlutafélag í eigu BÍ, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (RML) sem tekur við rekstri kynbótasýninga, eigandaskipta hrossa, grunnskráninga og annara skýrsluhaldsþátta sem að ráðunautar búnaðarsambandanna sáu um áður.
Nú starfs ráðunautarnir á landsvísu og eru starfsmenn RML og eins og svo oft áður er tekin upp gjaldskrá fyrir þætti sem ekki var rukkað sérstaklega fyrir áður.
Sem dæmi kostar í dag 1.255 kr að grunnskrá hross, 628 kr að eigandaskipta og 1.883 kr að skrá folaldaskýrslu, ef verkið er unnið af ráðunaut RML. Þetta er gjald sem ekki var rukkað fyrir hjá gömlu herrunum, en nú er aukin arðsemiskrafa þegar reka skal þetta sem hlutafélag.
Heimsókn rauðunauts til þeirra sem ekki borga búnaðragjald kostar núna 11.923kr/klst en 6,275 fyrir aðra.