Goðamót Léttis
Hið árlega Goðamót Léttis var haldið í gær og í dag. þetta var skemmtilegt mót en þó hefði nú mátt vera meiri skráning. mótið gekk vel fyrir sig. Egill Már Þórsson og Gustur frá Hálsi unnu bæði töltið og fjórganginn í barnaflokknum. Þóra Höskuldsdóttir og Steinar frá Sámsstöðum uðru efst í tölti unglinga og Ágústa Baldvinsdóttir og Senjor frá Syðri-Ey sigruðu fjórgang Unglinga
Pollaflokkurinn stóð vel fyrir sínu, í honum voru 3 þátttakendur. Það voru þær Karin Thelma Bernharðsdóttir, Bjarney Vignisdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir. Þær stóðu sig eins og hetjur.
Á þessu móti gefa Höskuldur Jónsson og Elfa Ágústsdóttir farandbikar sem ber heitið Þytsbikarinn. Þann bikar hlýtur sá unglingur sem er samanlagt efstur eftir forkeppni í tölt og fjórgang. Í þetta skipti urðu Þóra Höskuldsdóttir og Ólafur Göran Ólafsson jöfn og ætla þau að skiptast á að vera með bikarinn þetta árið.
Að loknu móti var svo grillað hamborgara í boði Norðlenska. Æskulyðsnefndin vill þakka öllum starfsmönnum og keppendum fyrir góðan dag.
Úrslit voru eftirfarandi:
Barnaflokkur – Tölt
1. Egill Már Þórsson og Gustur frá Hálsi. 6.28
2. Pálína Höskuldsdóttir og Héðinn frá Sámsstöðum. 6.11
3. Kristín Ragna Tobíasdóttir og Töfri frá Akureyri. 5.94
4. Freyja Vignisdóttir og Elding frá Litlu-Brekku. 5.78
5. Anna Ágústa Bernharðsdóttir og Lúkas frá Miðkoti. 5.17
6. Kristín Ellý Sigmarsdóttir og Dimmur frá Ytri-Bægisá. 5.11
Unglingaflokkur – Tölt
1. Þóra Höskuldsdóttir og Steinar frá Sámsstöðum.6.78
2. Ólafur Göran Ólafsson Grós og Fjöður Frá Kommu. 6.55
3. Iðunn Bjarnadóttir og Hekla frá Akureyri. 6.22
4. Valþór Ingi Karlsson og Glomma frá Tungu. 5.83
Barnaflokkur – Fjórgangur
1. Egill Már Þórsson og Gustur frá Hálsi. 6.53
2. Kristín Ragna Tobíasdóttir Töfri frá Akureyri. 6.16
3. Freyja Vignisdóttir og Elding frá Litlu-Brekku. 6.1
4. Pálína Höskuldsdóttir og Héðinn frá Sámsstöðum. 6.0
5. Kristín Ellý Sigmarsdóttir og Dimmur frá Ytri-Bægisá. 4.7
Unglingaflokkur – Fjórgangur
1. Ágústa Baldvinsdóttir og Senjor frá Syðri-Ey. 6.97
2. Ólafur Göran Ólafsson Grós og Fjöður Frá Kommu. 6.7
3. Berglind Pétursdóttir og Hildigunnur frá Kollaleiru. 6.5
4. Iðunn Bjarnadóttir og Hekla frá Akureyri. 6.13
5. Þóra Höskuldsdóttir og Steinar frá Sámsstöðum. 5.36