Fyrsta Kappaafkvæmið í kynbótadóm

  • 7. júní 2013
  • Fréttir

4 vetra fasmikill og flottur

Fyrsta Kappaafkvæmið í kynbótadóm

Fyrsta afkvæmi Kappa frá Kommu er komið til dóms en Kappi sló rækilega í gegn sem einstaklingur árið 2008 og hlaut þá 8,42 í aðaleinkunn þá 4 vetra. 

Nú kynbótasýningunni á Melgerðismelum var 4 vetra sonur hans Póstur frá Litla-Dal í Eyjafirði sýndur og hlaut 8,06 í aðaleinkunn og þar af 9,0 fyrir tölt, brokk og vilja/geðslag. Sannarlega frábær árangur fyrir svo ungan klárhest. Móðir Pósts er Óskarsdóttirin Kolka frá Litla-Dal en hún er 1.verðlauna hryssa með 8,0 fyrir alla þætti hæfileikanna.

IS2009165101 Póstur frá Litla-Dal

Örmerki: 352098100022178

Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt

Ræktandi: Jónas Vigfússon, Kristín Thorberg

Eigandi: Jónas Vigfússon, Kristín Thorberg, Sara Elisabet Arnbro, Vilberg Jónsson, Þórhallur Rúnar Þorvaldsson

F.: IS2004165890 Kappi frá Kommu

Ff.: IS1998186906 Þristur frá Feti

Fm.: IS1992265890 Kjarnorka frá Kommu

M.: IS2003265101 Kolka frá Litla-Dal

Mf.: IS1994165100 Óskar frá Litla-Dal

Mm.: IS1992265104 Salbjörg frá Litla-Dal

Mál (cm): 146 – 134 – 140 – 67 – 145 – 36 – 49 – 44 – 7,1 – 32,0 – 21,0

Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 7,9

Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 7,5 = 7,98

Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 = 8,11

Aðaleinkunn: 8,06

Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5

Sýnandi: Þórhallur Rúnar Þorvaldsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link