Aðalfundur Gusts
Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Gusts fimmtudaginn 27. janúar 2011 kl. 20 í reiðhöll Gusts í Glaðheimum…
Á heimasíðu Gusts, www.gustarar.is má sjá tillögur að lagabreytingum, en unnið hefur verið að því að uppfæra lög félagsins í samræmi við flutning á nýtt félagssvæði ofl. Núgildandi lög félagsins er einnig að finna á síðunni vilji menn bera saman þau lög og nýju tillögurnar.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Lagðir fram reikningar félagsins
3. Lagabreytingar
4. Kosning aðalstjórnar,varastjórnar og skoðenda
5. Kosning nefnda
6. Önnur mál er félagið varða.
Hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH