Landsmót 2024 „Æðislegur vinur, hann er eiginlega mennskur“

  • 7. júlí 2022
  • Fréttir
Niðurstöður úr b úrslitum í ungmennaflokki

Þá er b úrslitum í ungmennaflokki lokið en Katla Sif Snorradóttir á Flugari frá Morastöðum fór með sigur af hólmi. Eiðfaxi náði í skottið á þeim þegar þau komu röltandi brosandi útaf vellinum. „Flugar er algjör gæðingur, viljugur og rúmur á öllum gangi. Æðislegur vinur, hann er eiginlega mennskur. Hann hleypur á eftir manni og er alltaf með manni. Ofboðslega skemmtilegur hestur,“ segir Katla Sif en Flugar var keppnishestur hjá móður hennar og fékk Katla hann að láni fyrir Landsmótið.

„Alltaf stefnan að vinna b úrslitin. Mér fannst ekkert annað koma til greina því seinast þegar ég keppti á Landsmóti á Hellu þá vann ég líka b úrslitin þá í barnaflokki með Gust. Ég hugsaði að ég þyrfti að gera það aftur,“ segir Katla Sif sem setur stefnuna mjög hátt fyrir a úrslitin á laugardaginn.

B úrslit – Ungmennaflokkur – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn

8 Katla Sif Snorradóttir Flugar frá Morastöðum Sörli 8,60
9 Hákon Dan Ólafsson Svarta Perla frá Álfhólum Fákur 8,55
10 Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk Jökull 8,52
11 Egill Már Þórsson Hryggur frá Hryggstekk Léttir 8,52
12 Védís Huld Sigurðardóttir Fannar frá Blönduósi Sleipnir 8,47
13 Ásdís Freyja Grímsdóttir Pipar frá Reykjum Neisti 8,44
14 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi Sprettur 8,42
15 Katrín Ösp Bergsdóttir Ölver frá Narfastöðum Skagfirðingur 8,31

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link